Að tengjast náttúrunni

og upplifa gjafir hennar er dásamleg gjöf að gefa sér og öðrum, því við erum jú öll hluti af náttúrunni og hún er hluti af okkur.

Okkar nálgun á viðfangsefnið

Mörg okkar finna nú ríkari þörf til að tengjast Móður Jörð og hringrásum hennar betur og lifa í meiri samhljómi og samvinnu við hana, bæði af virðingu fyrir Móður Jörð og einnig vegna innri löngunar til að hægja á lífinu, stíga út úr hringiðu nútímasamfélags og upplifa innri kyrrð og frið. Þar gegnir Jörðin/náttúran og tenging við hana lykilhlutverki. 

Við getum öll æft okkur í að skynja mismunandi orku náttúrunnar. Því oftar sem við gerum það meðvitað því auðveldara verður það og því móttækilegri verðum við fyrir þeim skilaboðum og visku sem náttúran vill miðla til okkar á hverjum einasta degi. 

Tilgangur þessa hugleiðslupakka er að gera okkur kleift að tengjast náttúrunni hvar og hvenær sem er á auðveldan hátt. Hugleiðslurnar eru um leið skynjunaræfingar sem hjálpa okkur að efla innsæi og næmni. Hægt er að nota æfingarnar hvar sem er á landinu, í hvaða landi sem er þar sem viðkomandi náttúrufyrirbæri er að finna. 

Hvernig nálgast þú námskeiðið?

Hugleiðslurnar/æfingarnar henta bæði byrjendum og lengra komnum. Við hvetjum öll sem nýta sér pakkann til að halda dagbók yfir skynjarnir sínar og upplifanir, því þær geta verið ólíkar frá degi til dags og á milli svæða og landa. Að skrá upplifanir sínar á þennan hátt er frábær leið til að halda utan um allar þær upplýsingar sem koma til okkar í gegnum tengingar okkar við náttúruna. 

Í pakkanum er að finna eftirfarandi hugleiðslur:

  • Tenging við tré
  • Tenging við plöntu
  • Tenging við stein/klett
  • Tenging við vatn
  • Ferð inn að kristal Móður Jarðar

Með því að kaupa pakkann tryggir þú þér ótakmarkaðan aðgang að hugleiðslunum í 6 mánuði, að þeim tíma liðnum býðst þér að endurnýja tímabilið fyrir 2.500 krónur.