Við þökkum frábærar viðtökur á viðtalinu okkar í Vikunni! Okkur þykir mjög vænt um öll fallegu og jákvæðu skilaboðin og kommentin sem við höfum fengið og hlökkum til að byrja næsta ár skólans okkar í september. Vegna fyrirspurna höfum við ákveðið að halda stuttan fund á Zoom, fimmtudaginn 14. júlí kl. 20:00 þar sem við kynnum stuttlega námið Þín persónulega umbreyting og svörum spurningum, sjá nánar á Facebook viðburðinum hér.
Hægt er að skrá sig á fundinn með því að senda email á info@starcodesacademy.is eða senda okkur tölvupóstfangið þitt í skilaboðum í gegnum Facebooksíðuna okkar.
Á YouTube má einnig finna ítarlegri kynningarfund frá því fyrr í vor. Þar er fjallað nánar um forsögu skólans og þau námskeið sem í boði verða næsta skólaár.
Við hvetjum þig svo til að tengjast okkur á samfélagsmiðlunum okkar (Facebook, Instagram og YouTube) og skrá þig á póstlistann okkar, en það gerirðu hér á forsíðu vefsíðunnar okkar. Sjáumst þar!
