Skilmálar og skilyrði um notkun
Velkomin á vefsíðuna okkar. Ef þú kýst að vafra um og nota þessa vefsíðu undirgengst þú og ert bundin/bundinn/bundið af eftirfarandi skilmálum og skilyrðum um notkun, en þessi skilyrði í samspili við Friðhelgisstefnu (e. Privacy Policy) ramma inn tengsl Starcodes Academy sf. við þig í gegnum þessa vefsíðu. Ef þú samþykkir ekki skilmálana og skilyrðin að hluta til eða í heild biðjum við þig vinsamlegast um að nota ekki vefsíðuna.
Þegar talað er um Starcodes Academy, okkur eða við er verið að vísa í eiganda vefsíðunnar Starcodes Academy sf. kt. 5101022820 sem skráð er til heimilis í Álfkonuhvarfi 37, 203 Kópavogi, Íslandi. Tilvísanirnar notandi eða þú/þið vísar til notanda vefsíðunnar.
Notkun þessarar vefsíðu er háð eftirfarandi notkunarskilmálum:
Allt efni síðunnar er einungis ætlað notanda til upplýsingagjafar og notkunar. Efni síðunnar getur tekið breytingum án fyrirvara. Vefsíðan notast við vafrakökur til að fylgjast með hvaða efni er líklegt að notandinn kjósi að sjá.
Hvorki við né þriðji aðili ábyrgjast nákvæmni, tímalínu, framkvæmd, fullkomnun eða hentugleika þess efnis sem vefsíðan sýnir fyrir hvaða tilgang sem er. Notandi gengst undir að upplýsingar og efni gætu innihaldið ónákvæmni eða villur og við afsölum okkur ábyrgð á slíkri ónákvæmni og/eða villum að marki sem lagalegt svigrúm leyfir.
Notkun efnis af vefsíðunni er á þína eigin ábyrgð, við erum ekki ábyrg fyrir henni. Það er einnig á þína ábyrgð að tryggja að vörur, þjónusta og upplýsingar sem aðgengilegar eru í gegnum þessa vefsíðu uppfylli þínar kröfur.
Þessi vefsíða inniheldur efni sem við erum eigendur af eða okkur verið veitt leyfi til að nota. Efnið inniheldur, en takmarkast ekki af, hönnun, útliti, formhönnun, birtingu og grafík. Öll endurgerð/eftirprentun er óheimil með tilvísun í lög um höfundarrétt, sem eru að hluta til undirstaða þessara skilyrða.
Öll vörumerki sem eru sýnd á þessari vefsíðu og eru ekki í eigu Starcodes Academy sf., hafa tilheyrandi tilvísanir til skráðra eigenda sinna á þessari vefsíðu. Óheimil notkun þessarar vefsíðu getur leitt til skaðabótakröfu og/eða verið ólögleg.
Af og til getur þessi vefsíða innihaldið tengla á aðrar vefsíður. Þessir tenglar eru þér til þæginda og til að veita frekari upplýsingar um afmarkað efni. Þeir gefa ekki til kynna að við styðjum/styrkjum viðkomandi vefsíður. Við berum enga ábyrgð á innihaldi þeirra vefsíðna sem tenglarnir vísa til.
Námskeið og vinnustofur
Þetta eru almennir skilmálar um bæði námskeið og vinnustofur. Á öllum námskeiðum og vinnustofum ríkir trúnaður um þær persónulegu upplýsingar sem þar geta komið fram.
Skráningar á námskeið eru aðeins í gegnum vefsíðuna. Greiða skal fyrstu greiðslu námskeiðsgjalds sem inniheldur óendurkræft staðfestingargjald við skráningu nema að annað sé tekið fram.
Staðfesting á skráningu og greiðslu er send með tölvupósti. Með skráningu og fyrstu greiðslu námskeiðisgjalds fyrir námskeið á okkar vegum samþykkir þú þessi skilyrði og skilmála. Staðfestingargjald er innifalið í fyrstu greiðslu og er alltaf óendurkræft nema annað sé tekið fram, s.s. ef ekki er næg þátttaka er á námskeiðinu.
Þátttakandi skuldbindur sig til að mæta á námskeið eða vinnustofu á þeim tíma sem auglýstur er, því dagskrá hefst tímanlega. Í einhverjum tilfellum er ekki hægt að hleypa inn á viðburðinn eftir að dagskrá hefst.
Við kaup á efni á vef okkar skal greiða efnið að fullu við kaup. Efnið er aðgengilegt þar eftir á vef félagsins. Vefnámskeið eru aldrei endurgreidd.
Allt námsefni sem afhent er á styttri eða lengri námskeiðum s.s. prentefni, hljóðskrár, myndbönd eða efni á öllu öðru formi er í eigu Starcodes Academy sf. og einungis til persónulegra nota þess sem viðkomandi námskeið sækir. Öll afritun eða deiling á námsefni, sem og opinber notkun þess er með öllu óheimil.
Starcodes Academy sf. áskilur sér rétt til að hafna umsóknum á námskeið eða í samfélagið þar sem slíkt á við og er greiðsla þá endurgreidd.
Lengri námskeið:
Á lengri námskeiðum s.s. Þín persónulega umbreyting og Lifðu þinn tilgang gefst þátttakendum kostur á að greiða námskeiðið að fullu eða dreifa greiðslum eins og fram kemur á kaupsíðu námskeiðanna. Fyrsta greiðsla inniheldur staðfestingargjald sem er ávallt óendurkræft. Með skráningu og greiðslu hefur þátttakandi skuldbundið sig til að sitja allt námskeiðið, bæði staðlotur og fjarfundi, og til að greiða námskeiðsgjöld samkvæmt þeirri greiðsluáætlun sem valin var við skráningu. Ef greiðslur berast ekki samkvæmt áætlun verður krafan send í innheimtu og lokað verður fyrir aðgang að efni. Ekki er hægt að fá mánaðarlega tendrun vígslukóða nema að greiðslur standi í skilum.
Þátttakendur á lengri námskeiðum á vegum Starcodes Academy skuldbinda sig til að nýta ekki hugvíkkandi efni svo sem ayahuasca og ofskynjunarsveppi meðan á námskeiðinu stendur.
Leiðarljósið ÉG
Með skráningu og greiðslu hefur kaupandi skuldbundið sig til að sitja námskeiðið og inna af hendi greiðslur samkvæmt þeirri greiðsluáætlun sem valin var við skráningu. Ef valinn er VIP pakki til viðbótar við námskeiðið fara þeir tímar fram að námskeiði loknu en innan tveggja mánaða frá lokum þess, sjá nánar skilmála um Telegram daga.
Námskeiðið er kennt í gegnum vefinn nema síðasti dagurinn sem er staðlota.
Upptökur af veffundum verða aðgengilegar á vefsvæði námskeiðsins ásamt æfingum og hugleiðslum sem því fylgja, en efni staðlotunnar er ekki tekið upp og er því ekki aðgengilegt eftir á. Geti kaupandi ekki mætt á staðlotuna samkvæmt dagskrá fellur sá hluti niður fyrir viðkomandi.
Engla Reiki
Við skráningu og fyrstu greiðslu námskeiðsgjalds fær þátttakandi aðgang að undirbúningsefni á vef okkar. Með skráningu og greiðslu hefur þátttakandi skuldbundið sig til að sitja námskeiðið og inna af hendi greiðslur samkvæmt þeirri greiðsluáætlun sem valin var við skráningu.
Ef afbókað er á námskeiðið innan 14 daga frá upphafi þess er helmingur þátttökugjalds endurgreiddur, ef afbókað er innan 7 daga frá upphafi námskeiðs fæst þátttökugjald ekki endurgreitt. Staðfestingargjald kemur fram á kaupsíðu námskeiðsins og fæst það ekki endurgreitt en staðfestingargjald er innifalið í fyrstu greiðslu.
Þátttakandi þarf að sitja allt námskeiðið til að geta fengið skírteini um að námskeiðinu sé lokið, ekki er hægt að sitja hluta þess.
Heilun ættarlína
Við skráningu og fyrstu greiðslu námskeiðsgjalds fær þátttakandi tölvupóst með leiðbeiningum um undirbúning fyrir námskeiðið. Með skráningu og greiðslu hefur þátttakandi skuldbundið sig til að sitja námskeiðið og inna af hendi greiðslur samkvæmt þeirri greiðsluáætlun sem valin var við skráningu.
Ef afbókað er á námskeiðið innan 14 daga frá upphafi þess er helmingur þátttökugjalds endurgreiddur, ef afbókað er innan 7 daga frá upphafi námskeiðs fæst þátttökugjald ekki endurgreitt. Staðfestingargjald kemur fram á kaupsíðu námskeiðsins og fæst það ekki endurgreitt en staðfestingargjald er innifalið í fyrstu greiðslu.
Yfirlýsing um ábyrgð á eigin heilsu
Það er skilyrði fyrir skráningu á Engla Reiki vinnustofu, námskeiðið Heilun ættarlína sem og á námskeiðin Þín persónulega umbreyting og Lifðu þinn tilgang að þátttakandi láti kennara vita ef viðkomandi á sér sögu um eftirfarandi: Vandamál varðandi misnotkun áfengis, lyfja og/eða eiturlyfja. Geðræn vandamál, bæði ómeðhöndluð og þau sem verið er að meðhöndla nú með lyfjum eða annars konar meðferð. Hvað annað varðandi andlegt og líkamlegt heilsufar sem krafist getur sérstaks fyrirkomulags, eða þátttakandi telur mikilvægt að kennari viti um. Til dæmis (en ekki eingöngu) má nefna sykursýki, hjartaöng, flogaveiki, hvort þátttakandi taki nú eða muni taka einhver lyf meðan á vinnustofunni stendur og hvort þátttakandi hafi áður orðið fyrir erfiðum áhrifum eða reynslu við hvers konar orkuvinnu. Þátttakandi ber ábyrgð á sinni vellíðan og á því að upplýsa og ræða við kennara/leiðsögufólk um ofangreint og hvað annað sem mikilvægt gæti verið fyrir þau að vita við bókun á þessari vinnustofu. Skráningu telst ekki lokið fyrr en eyðublað þess efnis hefur verið fyllt út, það undirritað og því skilað til Starcodes Academy.
Ofangreindar upplýsingar eru geymdar á öruggan hátt og verður eytt að námskeiði loknu.
Endurstilling sálarinnar
Kaupandi skuldbindur sig til að senda viðeigandi upplýsingar til seljanda innan 30 daga frá kaupum á vöru.
Seljandi gefur sér 30 daga til að senda kaupanda hljóðskrá með grunnupplýsingum úr Akashic skrám viðkomandi. Kaupandi bókar síðan fjarfund þar sem seljandi fer ítarlega yfir skýrslu viðkomandi.
Mögulegt er að engar upplýsingar komi fram í Akashic skránum og eru þá 75% kaupverðs endurgreidd.
Hjartaakurinn andlegt samfélag
Allt efni sem aðgengilegt er innan samfélagsins er skapað af Starcodes Academy sf. og er eign félagsins nema annað sé tekið fram. Óheimilt er að dreifa efninu eða deila með öðrum, aðeins áskrifandi skal hafa aðgang að efninu og gildir sá aðgangur meðan á áskrift stendur.
Ef þátttakendur verða uppvísir að brotum á skilmálum okkar og reglum sem samþykktar eru í Facebook hóp Hjartaakursins er heimilt að loka alfarið fyrir aðgang að samveru (vef, Telegram og fundum) sem og efni.
Ef farið er gegn reglum í samveru á Facebook síðu, á Telegram og á fundum áskilur Starcodes Academy sf. sér rétt til að loka fyrir aðgang að samveru út áskriftartímabilið og verður áskrift þá ekki endurnýjuð.
Ef efni er dreift utan hópsins verður öllum aðgangi lokað. Haft verður samband við áskrifanda ef upp kemur grunur um brot á skilmálum áður en farið er í aðgerðir.
Áskrifandi skuldbindur sig til greiðslu í að lágmarki 6 mánuði við upphaf áskriftar. Ef sjálfvirkum greiðslum verður hætt áður en áskriftartímabili lýkur skal koma þeim aftur á innan 48 tíma, að öðrum kosti áskilur Starcodes Academy sf. sér rétt til að senda greiðslurnar í innheimtu eftir 7 daga. Eftir að binditíma lýkur er hægt að segja upp áskriftinni hvenær sem er.
Ef valið er að greiða ár í einu gildir áskriftin í 12 mánuði og er ekki endurgreidd.
Almennir skilmálar Starcodes Academy sf. hér á síðunni gilda um samfélagið eins og aðra starfsemi.
Telegram dagar
Heill Telegram dagur eru sex klukkustundir, hálfur dagur þrjár klukkustundir og fer fram á samskiptaforritinu Telegram.
Veflota Telegram dagsins er á öruggum netþjónum þriðja aðila. Við höfum gert allar sanngjarnar ráðstafanir til að tryggja að efnið sé aðgengilegt á öllum tímum á meðan Telegram dagurinn stendur yfir. Ef svo ólíklega vill til að efnið sé ekki aðgengilegt að hluta eða í heild, ef það spillist, eyðist eða vistun þess mistekst, berum við enga skaðabótaábyrgð undir neinum kringumstæðum.
Þú getur frestað Telegram degi með því að láta vita með tölvupósti eða í síma með 24 klukkustunda fyrirvara.
Afbókanir Telegram daga
Ef kaupandi afbókar Telegram dag innan 24 tíma frá því hann á að hefjast þarf hann að greiða daginn að fullu.
Ef dagurinn er bónus vegna kaupa á öðrum vörum fellur hann niður ef ekki er afbókað innan 24 tíma
Ef kaupandi afbókar með meira en 24 tíma fyrirvara er ný dagsetning fundin sem hentar báðum aðilum, sama á við ef kaupandi afbókar með meira en 24 tíma fyrirvara.
Ef kaupandi er af einhverjum ástæðum ófær um að veita þjónustuna á umsömdum tíma (vegna veikinda eða annarra ástæðna), verða þátttakendur látnir vita með eins góðum fyrirvara og auðið er og nýr tími fundinn sem hentar báðum aðilum.
Ljóskóðar
Einungis er hægt að panta og greiða fyrir ljóskóða í gegnum vefsíðuna. Þegar greiðsla hefur borist er ljóskóðunum miðlað og sendur í prentun innan 30 daga. Ef þú hefur valið að sækja ljóskóðann færðu tilkynningu þegar hann er tilbúinn. Hægt er að sækja ljóskóðann til okkar án endurgjalds eða fá hann sendan. Sendingarkostnaður miðast við gjaldskrá Póstsins og hann þarf að greiða fyrirfram. Sendingin er ekki tryggð en viljir þú bæta við tryggingu þá bætist það gjald ofan á sendingarkostnaðinn samkvæmt gjaldskrá Póstsins.
Öll verð eru í íslenskum krónum svo verð utan Íslands munu alltaf ráðast af gengi hverju sinni. Öll verð geta breyst án fyrirvara.
Persónulegum ljóskóðum er ekki hægt að skila þar sem þeir eru sérhannaðir fyrir hvern og einn. Ljóskóða Engla Reikis og annarra meðferðarforma er hægt að skila innan 30 daga að því gefnu að hann sé í sama ástandi og við afhendingu, ónotaður og í upprunalegum umbúðum. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur né færslukostnaður.
Vinsamlegast skoðið vöruna við afhendingu og hafið strax samband við Starcodes Academy ef hún er gölluð eða skemmd svo hægt sé að skoða málið.
Starcodes Academy sf. ber ekki ábyrgð á skemmdum á vöru og/eða á því ef vara glatast eftir að hún hefur verið afhent Póstinum, eða ef heimilisfang viðtakanda er ekki fullnægjandi eða ekki rétt skráð.
