Sálarfóður á Sumardaginn fyrsta – Hvaða fræjum vilt þú sá?

Heimsljós 2024

Á Sumardaginn fyrsta munum við bjóða upp á Sálarfóður frá kl. 13:30-15:30, en verslun Orkusteina verður opin frá kl. 11:30-13:00 sama dag. 

Að þessu sinni ætlum við að skoða hvaða fræjum okkur langar að sá inn í vorið og sumarið? 

Sumarið er uppáhaldstími okkar margra, en þrátt fyrir það eigum við það að ofhlaða okkur af verkefnum og upplifunum þessa tæpu þrjá mánuði til að fá eins mikið úr úr því eins og mögulegt er. Dagatalið er bókað sem aldri fyrr og öllum helgum ráðstafað langt fram í tímann. Að auki verður að nota hverja einustu sólarmínútu til að vera úti við, annars fáum við sólviskubit. 

En hvernig langar okkur í raun og vera að líða í sumar? Hvað er það sem við viljum uppskera að hausti? Þetta ætlum við að skoða í Sálarfóðrinu, með hjálp ljósveranna og eiga notalega stund saman. 

Skráning fer fram í gegnum vefsíðuna okkar hér, en aðeins eru takmörkuð pláss í boði. 

Við hlökkum til að sjá ykkur! 

 

 

Share This Post