Description
Inni í okkur öllum býr kraftur til rjúfa gömul munstur, ýta hindrunum úr vegi og skapa það líf sem við viljum lifa, líf á okkar eigin forsendum.
Það er margt sem við getum gert ein, en þegar við komum saman magnast orkan.
Þann 17. september ætlum við að skapa rými þar sem við köfum djúpt inn á við, spyrjum áleitinna spurninga og skoðum kraftinn sem innra með okkur býr til að taka okkar fyrstu skref. Kraftinn til að lifa lífinu fyrir okkur og ganga alltaf í átt að hamingjunni.
Mæting er kl. 19:20 í Fríkirkjuna í Hafnarfirði. Viðburður hefst 19:30, eftir það verður ekki hleypt inn í kirkjuna.
Einungis er hægt að tryggja sér pláss hér á vefnum. Aðgangseyrir fæst ekki endurgreiddur þó forföll verði.




