Description
Við bjóðum upp á viðburð á Zoom á 8 vikna fresti sem fengið hefur nafnið Sálarfundir, en fyrsti Sálarfundurinn verður haldinn 28. október kl. 17:30.
Sálarfundirnir eru öllum að kostnaðarlausu en þú þarf að skrá þig hér að neðan til að fá hlekk á Zoom, við sendum þér svo áminningu fyrir fundinn.
Fyrir viðburðina gefst þér kostur á að senda okkur spurningar um hvað sem er, auk þess sem við munum ræða um orkuna á hverjum tíma og segja frá því sem við erum að gera áhugavert hverju sinni.
Næstu fundir eru:
- 30. desember kl. 17:30
- 24. febrúar kl. 17:30
- 14. apríl kl. 19:00
- 16. júní kl. 19:00

