Leiðarljósið ÉG

From: 24.950 kr. / month for 10 months

Hægt að dreifa greiðslum á 5 mánuði eða 10 mánuði en þau sem greiða að fullu við skráningu fá í kaupauka 1 leiðsagnardag með kennurunum á Telegram að námskeiði loknu. Þau sem kaupa sérstakan VIP pakka fá auk þess 1 x 60 mínútna leiðsagnartíma í eigin persónu eða á Zoom OG 2 heila leiðsagnardaga á Telegram að námskeiði loknu.

Clear

SKU: N/A Category:

Description

Þetta námskeið er hannað fyrir þau sem starfa (eða stefna að því að starfa) við heildrænar meðferðir eða með fólki almennt.
Á námskeiðinu færum við þér ýmis verkfæri sem þú getur notað til að láta drauminn þinn um starfsemi byggða á sterkum grunni og gildum verða að veruleika, þar sem þú getur staðið að fullu í styrk þínum sem manneskja, meðferðaraðili og fyrirtækjaeigandi.

Námskeiðið hefst miðvikudaginn 4. mars og er hist vikulega á miðvikudögum á Zoom. Athugið að tímasetning Zoom funda er ögn breytilegur á milli daga. Námskeiðið endar á staðlotu á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 6. maí frá 10:00 – 16:00.

Athygli er vakin á því að þeim sem vilja tryggja sér persónulega leiðsögn að námskeiði loknu, gefst kostur á að kaupa sérstakan VIP pakka sem inniheldur 1 x 60 mínútna leiðsagnartíma í eigin persónu eða á Zoom OG 2 heila leiðsagnardaga á Telegram að námskeiði loknu.