Greiðslu lokið!
Hér getur þú pantað þinn persónulega ljóskóða! Vinsamlegast fylltu út eyðublaðið hér að neðan og hengdu við mynd af þér líka.
Þegar þú hefur sent pöntunina færð þú tölvupóst með staðfestingu og greiðsluupplýsingum. Þegar greiðsla hefur borist er ljóðkóðanum miðlað og hann sendur í prentun innan 30 daga. Ljóskóðinn kemur með hugleiðslu til að tengjast betur kóðanum.
Þegar ljóskóðinn þinn er tilbúinn getur þú sótt hann til okkar án endurgjalds. Þú getur einnig fengið hann sendan og leggst þá sendingargjald ofan á verðið. Sendingin er ekki tryggð en viljir þú tryggingu bætist það gjald ofan á sendingarkostnað samkvæmt gjaldskrá Póstsins.
Vinsamlegast athugið að kóðanum fylgir engin miðlun eða túlkun af neinu tagi önnur en hugleiðslan því markmiðið er að finna fyrir kóðanum og uppgötva hann, en ekki skilja hann í gegnum rökhugsun.
Persónulegu ljóskóðarnir eru teiknaðir/miðlað af listakonunni Hrabbý sem vinnur í náinni tengingu við erkiengilinn Metatron en hann hefur yfirumsjón með allri vinnu okkar hjá Starcodes Academy.
