Námskeið

Við styðjum þig við að umbreyta lífi þínu

Þín persónulega umbreyting

Þátttakendur námskeiðsins eru leiddir í ferðalag sjálfskoðunar. Námskeiðið er byggt á orkustöðvavinnu og er sambland af persónulegri leiðsögn, hugleiðslum, fræðslu, hópavinnu, samveru, dagbókarskrifum og fjölbreyttum heimaverkefnum.

Lifðu þinn tilgang

Námskeiðið er framhald af námskeiðinu Þín persónulega umbreyting og er því aðeins opið þeim sem hafa lokið því. Námskeiðið er framhald af námskeiðinu Þín persónulega umbreyting og er því aðeins opið þeim sem hafa lokið því. Kjarni námskeiðsins er sjúp sjálfskoðun og vinna í því að verða besta útgáfan af sér, þar sem áhersla er lögð að að treysta innsæi sínu og upplifunum og trúa á sinn magnaða kraft.

Leiðarljósið ÉG

Þetta námskeið er hannað fyrir þau sem starfa (eða stefna að því að starfa) við heildrænar meðferðir eða með fólki almennt. Á námskeiðinu færum við þér ýmis verkfæri sem þú getur notað til að láta drauminn þinn um starfsemi byggða á sterkum grunni og gildum verða að veruleika, þar sem þú getur staðið að fullu í styrk þínum sem manneskja, meðferðaraðili og fyrirtækjaeigandi.

Engla Reiki

Engla Reiki er mjúk en kröftuð heilunaraðferð þar sem við tengjumst orku englana til að heila okkur sjálf og aðra, en þátttakendur fara í gegnum mikið heilunarferli sjálf vikurnar í kringum námskeiðið. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Kalla englarnir á þig?

Heilun ættarlína

Á námskeiðinu skoðum við í gegnum fjölbreyttar leiðir, hvaða áhrif líf forfeðra og formæðra okkar hafa á okkar eigið líf í dag. Við tengjumst forfeðrum og formæðrum í gegnum hugleiðslur og leiðsagnarspil, leitum svara við þeim spurningum sem vakna, og förum í trommuferðalög og aðrar athafnir sem hjálpa okkur við að skilja, heila og hreinsa ættarlínurnar okkar og um leið okkur sjálf.

Hvað getum við boðið þér?

Hrabbý og Alma hafa lengi verið tengdar hinum andlega heimi og elska að deila reynslu sinni og þekkingu með öðrum. Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef þið hafið áhuga á sérsniðnu námskeiði eða fyrirlestri fyrir þinn hóp, annað hvort í eigin persónu eða á vefnum.