Miðvikudagsspjallið 3. janúar – Af hverju eru breytingar góðar fyrir okkur? MYNDBAND

Miðvikudaginn 3. janúar var fyrsta Miðvikudagsspjall ársins í beinni útsendingu á Facebooksíðu Starcodes skólans 
Að þessu sinni var umfjöllunarefnið breytingar. Oft finnur fólk þörf á að breyta einhverju í lífi sínu um áramót, strengir áramótaheit og setur sér háleit markmið. En af hverju eru breytingar mikilvægar? Og hvaðan á hvati til breytinga að koma? Þú getur hlustað á spjallið í meðfylgjandi myndbandi og ef spurningar vakna er þér velkomið að skrifa þær í athugasemdir fyrir neðan myndbandið. 
Hvað vilt þú heyra okkur tala um? Sendu okkur ábendingar á samfélagsmiðlum og við setjum þitt viðfangsefni í púkkið.

Við hvetjum þig til að fylgja okkur á samfélagsmiðlunum okkar Facebook, Instagram og YouTube. Sjáumst þar!

Share This Post