Leyndardómar skosku steinanna – Leiðarlýsing 2026
Upplifunarferð fyrir hjarta og sál
Ferðin LEYNDARDÓMAR SKOSKU STEINANNA verður farin dagana 6.-13. júní 2026. Við gistum í hinu glæsilega Balinakill Country House sem staðsett er á Kintyre Peninsula í Argyll (á vesturströnd Skotlands). Húsið og garðana í kring höfum við útaf fyrir okkur, og verður þetta bækistöð okkar á meðan á ferðinni stendur. Í eldhúsinu mun matreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir sjá til þess að við fáum mat sem nærir bæði líkama og sál. Við leggjum áherslu á hreint hráefni og heilbrigt fæði þar sem tillit er tekið til sérþarfa eins og kostur er og kjötneyslu verður haldið í lágmarki. Áfengi er ekki í boði í Balinakill og við gerum þá kröfu að þátttakendur neyti ekki áfengis á meðan á dagskrá stendur.
Frá Balinakill förum við í lengri og styttri dagsferðir þar sem okkar bíða ótal ævintýri og upplifanir.
Við byrjum alla daga á morgunstund þar sem við hugleiðum saman og leggjum línurnar fyrir daginn, og ljúkum dögunum með kvöldsamveru þar sem við lokum deginum með spjalli og hugleiðslu.
Kalla leyndardómar steinanna á þig?
DAGUR 1 – Ferðast til Skotlands (6. júní)
Hópurinn flýgur til Glasgow, þar sem áætluð lending er um kl. 13:25. Þar er safnast saman í rútu og haldið af stað áleiðis til Balinakill. Leið okkar liggur í m.a. meðfram hinu undurfagra Loch Lomond, í gegnum stórbrotna náttúru og friðsæl sveitaþorp. Við stoppum aðeins við Loch Lomond, fáum okkur hressingu á leiðinni og höldum svo áfram ferð okkar til Balinakill þar sem hlýlegt hús og gómsæt máltíð bíða okkar.
DAGUR 2 – Samvera í Balinakill (7. júní)
Við verjum deginum á sveitasetrinu og í nágrenni þess við að tengja okkur saman, hugleiða og setja okkur ásetning fyrir ferðalagið framundan. Allar máltíðir eru heima við.
DAGUR 3 – Kilmartin Glen – Kilmartin Museum og ganga um Kilmartin Glen (8. júní)
Kilmartin Glen er viðfrægt fyrir fjölda steinahringja, standandi steina og grafhýsa sem þar er að finna. Saga svæðisins er um margt merkileg og byrjum við á að heimsækja Kilmartin Museum til að kynna okkur hana betur, auk þess að snæða hádegisverð þar. Þaðan förum við í göngu og skoðum steinahringi, standandi steina og grafhýsi sem við tengjumst í gegnum hugleiðslur og innri skoðun. Leiðin er um 3 km löng, á jafnsléttu að mestu, og gefum við okkur um 3 tíma til að ganga hana. Að göngu lokinni fáum við okkur hressingu og skoðum handverk úr heimabyggð áður en við höldum til baka til Balinakill.
DAGUR 4 – Kilmartin Glen – Dunadd Fort, steinaristur og Carnasserie Castle (9. júní)
Áfram höldum við að skoða okkur um í Kilmartin Glen til að upplifa einstaka orku staðarins. Við byrjum á að stoppa í Dunadd Fort þar sem við göngum upp á virkishólinn og njótum samveru við verurnar sem þar búa. Að því loknu heimsækjum við tvo staði með fornum steinaristum (Achnabreck og Baluachraig) og endum heimsókn okkar í Kilmartin Glen á að skoða rústirnar af Carnasserie kastala. Að því loknu höldum við til baka til Balinakill og njótum kvöldsins saman.
DAGUR 5 – Eyjan Arran – heimsókn til Drumadoon (10. júní)
Við tökum ferju frá Claonaig yfir til Lochranza á eyjunni Arran. Þaðan keyrum við til hins töfrandi staðar Drumadoon. Þar verjum við stórum hluta dagsins, skoðum svæðið og njótum leiðsagnar heimamanna. Að því loknu tökum við ferjuna til baka og verjum kvöldinu heima við.
DAGUR 6 – Eyjan Arran – Machrie Moor steinahringurinn og Brodick kastali (11. júní)
Aftur tökum við ferjuna yfir til Arran, en í þetta skiptið liggur leið okkar að Machrie Moor steinahringnum. Frá bílastæðinu upp að steinahringnum eru um 2 km (4 km alls) en á leiðinni eru aðrir steinahringir og standandi steinar til að skoða. Gönguleiðin er greið og felur ekki í sér mikla hækkun, en munum við gefa okkur um 3 klst til að ganga hana. Að göngunni lokinni heimsækjum við Brodick kastla, þar sem okkur gefst kostur á að skoða safnið og ganga um hina undurfögru kastalagarða sem eru algjörlega einstakir.
DAGUR 7 – Bilinakill – Innra ferðalag og formlegt kvöld í anda aðalsins (12. júní)
Fyrri hluti dags verður tileinkaður innri ferðalögum en á dagskránni eru m.a. hugleiðslur, skrif og helgar athafnir.
Seinni hluta dagsins skiptum við algjörlega um gír, klæðum okkur í fínu fötin að hætti breska aðalsins (hattar velkomnir) og höldum alvöru sveitasetursboð.
Við hvetjum alla til að taka með sér sparifötin, setja á sig spariskóna og lifa sig inn í alvöru sveitasetursstemningu.
Til hvers að hafa heilt sveitasetur út af fyrir okkur ef við leikum okkur ekki í leiðinni!??
DAGUR 8 – Heimferð
Að morgunverði loknum höldum við af stað til Glasgow flugvallar, en þaðan fer flugið heim kl. 14:20. Áætlað er að vera á flugvellinum í það minnsta 2 klst fyrir brottför.
SKRÁNING
Þú getur skráð þig í ferðina með því að smella hér og skrolla neðst á síðuna. Aðeins eru 16 pláss í boði!
