Krossgötur – Hvaða leið velur þú?

Krossgötur – Hvaða leið velur þú?

Krossgötur er tveggja daga áskorun þar sem við rýnum í hvar við erum og hvert við ætlum að fara

Þegar við stöndum á krossgötum með marga möguleika fyrir framan okkur er nauðsynlegt að staldra við og finna hvert við viljum fara næst. Á þessum tíma þar sem heimurinn breytist hratt, samfélagið virðist stundum í óreiðu og margt í gangi í lífinu er stundum einfaldast að stoppa og vera á sama stað. Það getur verið óþægilegt að breyta, jafnvel þó við vitum að við þurfum þess.

En þegar við stöndum á krossgötunum er einmitt tækifæri til vaxtar. Tækifæri til að kafa inn á við og skoða hvort við séum á þeim stað sem við viljum og hvert við viljum fara næst.

Það þarf enginn að fara í það ferðalag einn, því komum við saman á þessum tveggja daga viðburði til að skoða okkur um á krossgötunum og kanna leiðir fram á við í öruggu rými.

Hvernig fer viðburðurinn fram?

Viðburðurinn fer fram í lokuðum hópi á Telegram* samskiptaforritinu þar sem efni (hljóðskrár, texti og verkefni) verður miðlað og við vinnum saman í flæði á tilsettum tíma.

Hvenær hittumst við?

1. og 2. júlí kl. 17.30 og er gott að gera ráð fyrir allt að tveimur tímum í vinnuna hvorn dag. Það kostar ekkert að vera með en nauðsynlegt er að skrá sig til að fá aðgang að hópnum.

*Telegram er einfalt samskiptaforrit sem hægt er að hlaða niður bæði í síma og tölvu og mælum við með að nota tölvu á viðburðinum.
Ef þú kemst ekki nákvæmlega á þessum tíma geturðu unnið efnið á þínum hraða þegar þér hentar um kvöldið en við hvetjum þig til að mæta í flæðið með okkur í rauntíma til að fá sem mest út úr samverunni og kraftinum í hópnum.