BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Starcodes Academy IS - ECPv6.15.20//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Starcodes Academy IS
X-ORIGINAL-URL:https://starcodesacademy.is
X-WR-CALDESC:Events for Starcodes Academy IS
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20250605T180000
DTEND;TZID=UTC:20250605T200000
DTSTAMP:20260513T121320
CREATED:20250319T102930Z
LAST-MODIFIED:20250516T115657Z
UID:243839-1749146400-1749153600@starcodesacademy.is
SUMMARY:Sálarfóður - Hvernig notum við leiðsagnarspil?
DESCRIPTION:Á námskeiðinu Hvernig notum við leiðsagnarspil? förum við stöllur yfir hvernig við höfum notað spilin okkar til leiðsagnar og til að dýpka okkar andlegu vinnu síðustu 20 ár. Við kynnum mismunandi spil og spilalagnir\, og mögulega notkun spilanna. Hver þátttakandi leggur tvær ólíkar spilalagnir til að fá leiðsögn inn í sitt líf og það sem mögulega er framundan. Grunnurinn að því að nýta spilin er að hafa tengingu við þau og að spyrja þeirra spurninga sem við þurfum svör við. Gott er að nýta spilalagnir til þess að fá ramma um það sem við viljum vita eða þurfum að vita. Það er jú þannig að spilin geta oft leitt okkur í átt að því sem við þurfum frekar en því sem við viljum. Námskeiðinu fylgja tvær spilalagnir og spilastokkur að eigin vali úr verslun Orkusteina að andvirði 6.000 kr. \n—– \nSálarfóður er fyrst og fremst hugsað sem gefandi stundir þar sem við njótum samveru við hvort annað og hugsanlega lærum eitthvað nýtt um okkur sjálf og heiminn í leiðinni. \nHver stund er einstök þar sem unnið er með ólík viðfangsefni\, og nýtt ýmis tæki og tól sem geta hjálpað okkur að efla andlegar tengingar okkar og traust til þeirra vera sem við vinnum með. Þannig eflum við einnig tenginguna við okkur sjálf og eigum auðveldara með að hlusta á rödd hjartans. \nTímarnir henta bæði þeim sem eru að taka fyrstu skrefin á sinni andlegu braut\, og þeim sem lengra eru komnir\, því það er jú alltaf gagnlegt að rifja upp og endurmeta það sem áður hefur verið lært. Þannig styrkjum við okkur og eflum í hverju skrefi. \nStundina leiðum við\, Hrabbý og Alma\, en við munum stilla inn á orkuna fyrir samveruna og fylgja þeirri leiðsögn sem við fáum fyrir hverja Sálarfóðurs stund. \nVið hvetjum þig til að koma með bók og skriffæri til að skrifa hjá þér upplifanir og upplýsingar sem þú færð. \nÞað er nauðsynlegt að skrá sig og aðeins eru takmörkuð pláss í boði. \nVið hlökkum til að eiga með ykkur gefandi stundir.
URL:https://starcodesacademy.is/event/salarfodur-4/
LOCATION:Starcodes skólinn\, Krókháls 5A\, 2. hæð til vinstri\, Reykjavík\, 110
CATEGORIES:Námskeið,Sálarfóður
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://starcodesacademy.is/wp-content/uploads/2025/03/Hrabby_Alma-8-1.jpg
ORGANIZER;CN="Starcodes Academy":MAILTO:info@starcodesacademy.com
END:VEVENT
END:VCALENDAR