
Veistu að þú þarft að gera breytingar en finnur ekki kraftinn til þess að taka af skarið?
Veistu ekki hvað þú átt að byrja?
Áttu erfitt með að trúa á þinn eigin mátt?
Upplifir þú jafnvel einsemd eða skilningsleysi þeirra sem í kringum þig eru og vantar samfélag fólks sem skilur þig og styður?
Inni í okkur öllum býr kraftur til rjúfa gömul munstur, ýta hindrunum úr vegi og skapa það líf sem við viljum lifa, líf á okkar eigin forsendum.
Það er margt sem við getum gert ein, en þegar við komum saman magnast orkan.
Þann 17. september ætlum við að skapa rými þar sem við köfum djúpt inn á við, spyrjum áleitinna spurninga og skoðum kraftinn sem innra með okkur býr til að taka okkar fyrstu skref. Kraftinn til að lifa lífinu fyrir okkur og ganga alltaf í átt að hamingjunni.
Mæting er kl. 19:20 í Fríkirkjuna í Hafnarfirði. Viðburður hefst 19:30, eftir það verður ekki hleypt inn í kirkjuna.
Einungis er hægt að tryggja sér pláss hér á vefnum. Aðgangseyrir fæst ekki endurgreiddur þó forföll verði.

