Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sálarfóður – Verndardýr

ágúst 7, 2025 @ 5:30 e.h. - 7:30 e.h.

Dagsetning og tími: 7. ágúst frá klukkan 17.30 til 19.30 – Verndardýr

Verndardýr eða spirit animals fylgja okkur og er ekki bara gaman heldur gott að kynnast þeim til að vinna frekar með þessum dásamlegu verum. Í Sálarfóðri fimmtudaginn 7. ágúst verður námskeið um verndardýr.

Við vinnum þó ekki bara með okkar persónulega verndardýri heldur nýtum við okkur leiðsagnarspil með dýrum til leiðsagnar og til að dýpka tengingu okkar við visku og orku dýranna.

Námskeiðinu fylgir spilastokkur að eigin vali með dýrum. Við eigum nokkra ólíka stokka með dýrum og með einum þeirra er hægt að kaupa íslenska þýðingu.

Sálarfóður er fyrst og fremst hugsað sem gefandi stundir þar sem við njótum samveru við hvort annað og hugsanlega lærum eitthvað nýtt um okkur sjálf og heiminn í leiðinni.

Hver stund er einstök þar sem unnið er með ólík viðfangsefni, og nýtt ýmis tæki og tól sem geta hjálpað okkur að efla andlegar tengingar okkar og traust til þeirra vera sem við vinnum með. Þannig eflum við einnig tenginguna við okkur sjálf og eigum auðveldara með að hlusta á rödd hjartans.

Tímarnir henta bæði þeim sem eru að taka fyrstu skrefin á sinni andlegu braut, og þeim sem lengra eru komnir, því það er jú alltaf gagnlegt að rifja upp og endurmeta það sem áður hefur verið lært. Þannig styrkjum við okkur og eflum í hverju skrefi.

Stundina leiðum við, Hrabbý og Alma, en við munum stilla inn á orkuna fyrir samveruna og fylgja þeirri leiðsögn sem við fáum fyrir hverja Sálarfóðurs stund.

Við hvetjum þig til að koma með bók og skriffæri til að skrifa hjá þér upplifanir og upplýsingar sem þú færð.

Það er nauðsynlegt að skrá sig og aðeins eru takmörkuð pláss í boði.

Við hlökkum til að eiga með ykkur gefandi stundir.

Details

Venue