Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sálarfóður – Hvernig notum við kristala?

júlí 17, 2025 @ 4:00 e.h. - 6:00 e.h.
ISK10500

Dagsetning og tími: 17. júlí frá klukkan 16:00 til 18:00 – Hvernig notum við kristala?

Við stöllur höfum báðar nýtt okkur kristala í leik og starfi í rúmlega 15 ár og getum hreinlega ekki mælt nógu mikið með þessum dásamlegu vinum. Á námskeiðinu Hvernig notum við kristala förum við yfir hvernig hægt er að nota kristala í daglegu lífi. Námskeiðinu fylgir kristalapakki.

—–

Sálarfóður er fyrst og fremst hugsað sem gefandi stundir þar sem við njótum samveru við hvort annað og hugsanlega lærum eitthvað nýtt um okkur sjálf og heiminn í leiðinni.

Hver stund er einstök þar sem unnið er með ólík viðfangsefni, og nýtt ýmis tæki og tól sem geta hjálpað okkur að efla andlegar tengingar okkar og traust til þeirra vera sem við vinnum með. Þannig eflum við einnig tenginguna við okkur sjálf og eigum auðveldara með að hlusta á rödd hjartans.

Tímarnir henta bæði þeim sem eru að taka fyrstu skrefin á sinni andlegu braut, og þeim sem lengra eru komnir, því það er jú alltaf gagnlegt að rifja upp og endurmeta það sem áður hefur verið lært. Þannig styrkjum við okkur og eflum í hverju skrefi.

Stundina leiðum við, Hrabbý og Alma, en við munum stilla inn á orkuna fyrir samveruna og fylgja þeirri leiðsögn sem við fáum fyrir hverja Sálarfóðurs stund.

Við hvetjum þig til að koma með bók og skriffæri til að skrifa hjá þér upplifanir og upplýsingar sem þú færð.

Það er nauðsynlegt að skrá sig og aðeins eru takmörkuð pláss í boði.

Við hlökkum til að eiga með ykkur gefandi stundir.

Details

Venue