Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Sálarfóður – Hvernig notum við leiðsagnarspil?

júní 5, 2025 @ 6:00 e.h. - 8:00 e.h.
ISK10500

Á námskeiðinu Hvernig notum við leiðsagnarspil? förum við stöllur yfir hvernig við höfum notað spilin okkar til leiðsagnar og til að dýpka okkar andlegu vinnu síðustu 20 ár. Við kynnum mismunandi spil og spilalagnir, og mögulega notkun spilanna. Hver þátttakandi leggur tvær ólíkar spilalagnir til að fá leiðsögn inn í sitt líf og það sem mögulega er framundan. Grunnurinn að því að nýta spilin er að hafa tengingu við þau og að spyrja þeirra spurninga sem við þurfum svör við. Gott er að nýta spilalagnir til þess að fá ramma um það sem við viljum vita eða þurfum að vita. Það er jú þannig að spilin geta oft leitt okkur í átt að því sem við þurfum frekar en því sem við viljum. Námskeiðinu fylgja tvær spilalagnir og spilastokkur að eigin vali úr verslun Orkusteina að andvirði 6.000 kr.

—–

Sálarfóður er fyrst og fremst hugsað sem gefandi stundir þar sem við njótum samveru við hvort annað og hugsanlega lærum eitthvað nýtt um okkur sjálf og heiminn í leiðinni.

Hver stund er einstök þar sem unnið er með ólík viðfangsefni, og nýtt ýmis tæki og tól sem geta hjálpað okkur að efla andlegar tengingar okkar og traust til þeirra vera sem við vinnum með. Þannig eflum við einnig tenginguna við okkur sjálf og eigum auðveldara með að hlusta á rödd hjartans.

Tímarnir henta bæði þeim sem eru að taka fyrstu skrefin á sinni andlegu braut, og þeim sem lengra eru komnir, því það er jú alltaf gagnlegt að rifja upp og endurmeta það sem áður hefur verið lært. Þannig styrkjum við okkur og eflum í hverju skrefi.

Stundina leiðum við, Hrabbý og Alma, en við munum stilla inn á orkuna fyrir samveruna og fylgja þeirri leiðsögn sem við fáum fyrir hverja Sálarfóðurs stund.

Við hvetjum þig til að koma með bók og skriffæri til að skrifa hjá þér upplifanir og upplýsingar sem þú færð.

Það er nauðsynlegt að skrá sig og aðeins eru takmörkuð pláss í boði.

Við hlökkum til að eiga með ykkur gefandi stundir.

Details

Organizer

Venue