
Á aðventunni bjóðum við þér upp á slakandi og nærandi stund fyrir sálina, til að minnka streitu og njóta betur alls þess sem desembermánuður hefur upp á að bjóða. Við skulum ekki gleyma okkur í jólastressinu, heldur muna að gæta að orkunni okkar og þeirri staðreynd að við megum velja að eiga rólegan og notalegan desember.
Hugleiðslan er um 20-30 mínútur að lengd og hefst stundvíslega á Zoom kl. 12:00.
Það eina sem þú þarft að gera til að vera með er að skrá þig á póstlistann á heimasíðunni okkar fyrir kl. 11:15 þann 8. desember og við sendum þér tengil fyrir fund.

