
Kristalar eru dásamlegir vinir að eiga!
Kristalar hafa fylgt okkur í yfir 20 ár og við notum þá daglega fyrir okkur sjálfar, heimili okkar og við vinnu.
Á þessu námskeiði förum við yfir helstu grunnatriði varðandi notkun þeirra og umhirðu svo þeir megi gagnast þér sem allra best í leik og starfi.
Við hittumst á Zoom miðvikudaginn 13. desember í hádeginu, strax að loknu miðvikudagsspjalli okkar.
Námskeiðið er frítt en nauðsynlegt er að skrá sig, sjá hlekk hér að neðan. Að skráningu lokinni færðu senda hlekk á námskeiðið í tölvupósti.

