Loading Events

« All Events

Engla Reiki 3 og 4 í Reykjavík

ágúst 27 @ 9:30 f.h. - ágúst 29 @ 4:30 e.h.
ISK95000

Engla Reiki er dásamlega mjúk en kröftug heilunaraðferð sem við getum notað dags daglega fyrir okkur sjálf, fjölskyldu, vini og dýrin okkar, sem og boðið viðskiptavinum.

Engla Reiki 3 og 4 vinnustofan er þrír heilir dagara og er fyrir þau sem lokið hafa Engla Reiki 1 og 2. Að námskeiði loknu eru þátttakendur Engla Reiki meistarar og hafa réttindi til að kenna Engla Reiki.

Þátttakendur læra tvær nýjar heilunaraðferðir og vinna auk þess með aðferðirnar sem kenndar voru á fyrra námskeiði. Gerð er samstilling við 3. og 4. stig Engla Reikis.

Þar sem meðferðarvinna krefst sjálfsvinnu þá er áhersla lögð á að þátttakendur vinni með sig, næri sig og njóti, um leið og tenging við englana er styrkt.

Nánari upplýsingar um námskeiðið eru á vefsíðunni hér fyrir neðan.

Námskeiðið kostar 95.000. Þátttakendur fá prentaða handbók á íslensku fyrir Engla Reiki 3&4 sem inniheldur einnig kennsluhandbók fyrir Engla Reiki 1&2. Skráning fer fram hér.
Þú getur valið að greiða námskeiðið í heild sinni eða að skipta greiðslum í þrennt. Staðfestingargjald er 20.000 kr. af fyrstu greiðslu og er það ávallt óafturkræft.
Kennari á námskeiðinu er Alma Hrönn Hrannardóttir

Details

Organizer