Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Draumráðningar

október 11, 2025 @ 10:00 f.h. - 1:00 e.h.
ISK33300

Á námskeiðinu rýnum við í draumana þína og þarft þú að halda draumadagbók fyrir og á meðan námskeiðinu stendur. Þú munt fá nánari leiðbeiningar í tölvupósti að lokinni skráningu.

Draumar eru leið sálarinnar til að segja okkur á hvaða leið við erum í lífinu og benda okkur á hvað við getum gert betur eða hvað okkur ber að varast. Ég hef haft áhuga á draumum síðan ég var unglingur og fann fljótt út að þeir merktu eitthvað fyrir mig. Ég hef æ síðan hlustað á drauma mína.

Námskeiðið er þrjú skipti, laugardaginn 11. október, sunnudaginn 19. október og laugardaginn 25. október milli 10 og 13 alla dagana.

Námskeiðið er haldið á Krókhálsi 5A í Reykjavík, 2. hæð (Króka skrifstofur) og er gott aðgengi að húsnæðinu.

Details

Organizer

Venue