Um okkur

Stofnendur Starcodes Academy

Sagan okkar

Um Hrabbý

Frá því ég man eftir mér var ég afar ábyrgðarfullur krakki. Ég ólst upp í sveit og upplifði mig oft mun eldri en þau sem í kringum mig voru. Ég sá heiminn oft á annan hátt, fann tilfinningar allra í kringum mig og fannst fólk oft ekki skilja hið stóra samhengi hlutanna. Ég hafði líka alltaf þá sterku tilfinningu að ég ætti að bjarga heiminum, sem var afar kvíðavaldandi fyrir barn sem ekki hafði bjargir til þess. Köllunin og tilgangurinn voru strax mjög sterk og því auðvelt að stíga inn í það hlutverk að ætla að bjarga öllum. 

Ég hef alltaf átt sérstaka tengingu við náttúruna og fundist ég geta talað við hana. Sem krakki talaði ég við blóm og steina, hvíslaði að ánni sem rann framhjá bænum og klifraði í trjánum við gamla íbúðarhúsið. Eftir að ég fullorðnaðist og fór að skoða þessar tengingar mínar betur skil ég að þarna sótti ég í náttúruverurnar og samveru við þær. Að fara út eða gleyma mér í bók voru einu leiðirnar sem ég þekkti til að eiga við kvíðann sem fylgdi mér alla barnæskuna og fram á fullorðinsár.

Mér gekk alltaf vel í skóla og ég lagði mikinn metnað í að gera mitt allra besta þar. Mig dreymdi alltaf um að vera listakona en vegna þess hversu vel mér gekk í bóklegu námi fannst mér ég þurfa að fara í háskóla og læra eitthvað “praktískt”. Þar lærði ég ferðamálafræði og varð mér út um kennsluréttindi og eftir nám lá leið mín út á vinnumarkaðinn. 

Framhalds- og háskólaárin voru ljúfsár. Ég á fullt af góðum minningum en þegar ég lít til baka finnst mér oft erfitt að sjá hversu lítið sjálfstraust og bjagaða sjálfsmynd þessi unga kona hafði. Ég barðist við bjagaða líkamsmynd og bar sár sem studdu mig í þeirri trú að ég þyrfti að vinna fyrir því að vera elskuð. Ég gaf sjálfri mér einhvern veginn aldrei séns, heldur keyrði mig bara áfram í þá átt sem ég taldi að ég ætti að vilja fara. Það sem hentaði öðrum líklegast betur en mér. 

Persónulegur ljóskóði Hrabbýjar

Ég hef alltaf haft gott innsæi, en á þessum árum var ég of þrjósk til að hlusta á það. Ef heilinn var búin að ákveða eitthvað skyldi það bara ganga, alveg sama hvað hjartað segði. Þetta varð auðvitað til þess að ég tók ákvarðanir sem komu mér í vandræði, óheilbrigð sambönd og erfiðar aðstæður þar sem ég tapað ennþá stærri hluta af sjálfri mér. Jafnvel aðstæður þar sem ég var í raunverulegri hættu, ég bara þráði svo heitt að vera elskuð og séð eins og ég er, þó að í rauninni væri ég hvorugt. 

Þegar ég varð ófrísk af dóttur minni (29 ára) kom upp afar sterk þrá innra með mér að tengjast heiminum og lífinu á annan hátt. Þar má í raun segja að mín andlega vegferð hafi byrjað fyrir alvöru Ég fór í þróunarhóp, fór að iðka hugleiðslu og smám saman opnaðist fyrir mér nýr heimur. Ég fór ekki á kafi í andlegu málin þá en þarna lagði ég grunninn að því sem síðar átti eftir að bjarga mér.

Eftir tvær trúlofanir og eitt hjónaband var ég einstæð móðir með 3 ára skottu og við tóku þrjú ár þar sem ég reyndi að finna sjálfa mig.  Ég var orðin svo vön því að ganga á móti innsæinu mínu að ég kunni ekki að hlusta á hjartað lengur. Ég treysti einfaldlega ekki sjálfri mér, því ég hafði ekki reynst mér vel. 

Þegar ég svo kynnist sálufélaganum mínum dundu á okkur hvert áfallið á fætur öðru þar til ég missti heilsuna og lenti í alvarlegri lífskulnum. Eftir að hafa farið í endurhæfingu á Reykjalundi og farið í gegnum prógrammið hjá VIRK var ég úrskurðuð óendurhæfanleg. Það var stór stimpill fyrir konu sem átti að vera í blóma lífsins. Á sama tíma gekk Alma besta vinkona mín í gegnum svipaða reynslu og fékk sama stimpil á ennið. 

Við höfðum þó báðar afar sterka sannfæringu í hjartanu um að leið okkar til bata lægi annarsstaðar, í gegnum heildrænni leiðir en við höfðum reynt. Við vorum báðar komnar svo langt frá ástríðum okkar og tilgangi og þurftum að finna aftur leiðina heim.  

Við ákváðum að gera það saman og við tók magnað ævintýri sem við sjáum ekki enn fyrir endann á. Ég opnaði á tengingarnar mínar og fór að miðla ljóskóðum sem áttu eftir að breyta lífi okkar. Í gegnum okkar eigin ljóskóðavinnu miðluðum við námsefni fyrir námskeiðið okkar Þín persónulega umbreyting og síðan framhaldsnámskeiðið Lifðu þinn tilgang. Breytingin á mínu lífi eftir þetta ferðalag er mögnuð og ég tel það mikil forréttindi að fá að vísa öðrum þennan veg.

Í gegnum þetta ferðalag lærði ég að hjartað er mikilvægasti áttavitinn og á það þarf ég ALLTAF að hlusta. Það þýðir að ég þarf að sinna öllum hliðunum mínum, taka ábyrgð á mínu lífi, sýna mig eins og ég raunverulega er og taka hugrökk skref á öllum sviðum lífsins til að láta drauma mína rætast.

Ferilskrá Hrabbýar

Um Ölmu

Ég fór þessa hefðbundnu leið í lífinu lengst af. Mér gekk afar vel í skóla, ég hafði mjög snemma þá tilfinningu að ég yrði að standa mig 150% í öllu og tók gjarnan ábyrgð, oft vel umfram það sem eðlilegt er fyrir börn og ungt fólk.

Þessi tilfinning hefur nánast alltaf fylgt mér, í gegnum æskuna, háskólanám, félagsstörf og vinnu þar sem ég þurfti að vita og geta sem mest til að sanna mitt virði, og gera betur en til var ætlast. Svo flyt ég til útlanda til að vinna og fara í framhaldsnám. Í því námi fer hin raunverulega ég að kíkja út úr skelinni minni enda þekkti ég engan á staðnum og hafði enga nema sjálfa mig að hugsa um.

Það var afar brotin manneskja sem kíkti þarna út. Það var ekki auðvelt að gera allt í einu bara það sem mig langaði og hafa engan og ekkert til að passa upp á nema mig sjálfa. Mitt sjálf hafði alltaf verið svo nátengt öðrum, þeirra líðan og væntingum að ég hafði ekki hugmynd um hver ég var ein og sér. 

Að sjálfsögðu fór ég í sömu mynstrin aftur um leið og heim var komið og ég rígbatt sjálfið aftur við aðra. Á sama tíma fór að kafa í andleg mál sem leiddi mig á þá braut sem ég er í dag.
Mín sterkustu mynstur voru ákafari en áður, þörf fyrir að gera betur, vinna meira, stýra stærri verkefnum og standa mig sama hvað það kostaði mig andlega og líkamlega. Í minni fjölskyldu gefumst við nefnilega ekki upp!

Persónulegur ljóskóði Ölmu

Ég hef alltaf verið mjög góð í að halda í marga þræði í einu, passa upp á að upplýsingar flæði og ég viti allt sem um er að vera. Það fór svo að reynast erfiðara og erfiðara þegar ég varð fertug.

Á sama tíma þarfnaðist barnið mitt meira frá mér. Þegar það fer í skóla eykst álagið mikið þar sem skynsegin barnið mitt passar ekki inn í þennan ramma sem skólakerfið gefur. Ég hélt samt enn áfram og keyrði mig hressilega í kaf þar til ég bókstaflega gat ekki meir.

Sem betur fer gerði ég mér strax grein fyrir að leiðin til bata yrði löng. Ég vissi að andlega og líkamlega heilsan tækju tíma að jafna sig og átta mig á að ég hefði líklega helling af drasli í kistunni sem ég ætti eftir að vinna úr. Eftir hefðbundu endurhæfinguna hjá Virk fórum við Hrabbý að vinna saman sem leiddi til þess að við tókum á móti þeim tækjum og tólum sem við höfum núna innan námskeiðsins Þín persónulega umbreyting. Þvílíkt ferðalag sem sú vinna var!

Það er ótrúlega frelsandi að finna hvernig losnar um gömul mynstur, að finna hvernig hjartað fer að tala til mín, að finna mig. Að finna og vita að ég get verið bara ég og að ég skipti máli. Að ég er mikils virði jafnvel þó ég hafi ekki 150% að gefa, og að ég þarf ekki að gera neitt annað en það sem mér er fyrir bestu. Mitt sjálf er ekki bundið öðrum í dag og hin raunverulega ég, fullkomlega ófullkomin, fær að skína í gegn. 

Í gegnum þetta ferðalag var ómetanlegt að hafa Hrabbý mína bestu vinkonu með mér en við höfum fylgst að í bráðum 40 ár! Við deilum þeirri sýn að við séum andlegar verur í jarðneskum líkama og að andleg vinna sé hluti af daglega lífinu. Við nálgumst því vinnuna sem praktískan stuðning í daglega lífinu enda gerum við okkur grein fyrir að við breytum engu nema byrja á okkur sjálfum. Okkar vinnu er hvergi nærri lokið og höldum við ótrauðar áfram í áttina að draumum okkar um leið og við styðjum aðra á sama ferðalagi. 

Ferilskrá Ölmu

Persónulegur ljóskóði Ölmu