Rétti tíminn

Rétti tíminn

Rétti tíminn – Þú skapar hann, enginn annar

Við þekkjum öll tilfinninguna að geyma draumana okkar ofan í skúffu. Við kaupum stílabækur, skrifum niður markmið og þrár okkar, en lokum þeim svo aftur. Við segjum við okkur sjálf að við stígum skrefið þegar það „hægir á“ í lífinu, þegar næsta verkefni klárast, eða þegar við finnum meira rými.

En raunin er sú að það hægir aldrei á lífinu af sjálfu sér. „Rétti tíminn“ birtist ekki á dagatalinu þínu eins og fyrir töfra.

Sannleikurinn er sá að enginn annar forgangsraðar þér eða þínum draumum. Það býr enginn í þínum líkama og þinni orku nema þú. Krafturinn til að breyta flæðinu er þinn – og hann byrjar með ákvörðun.

Á þessari tveggja klukkustunda vinnustofu ætlum við að hætta að bíða eftir rétta tímanum.

Við ætlum að:

  • Stíga inn í öruggt rými: Þar sem þú getur lagt niður hlutverkin, slakað á og leyft taugakerfinu að lenda.
  • Tengjast dýpra: Í gegnum kyrrð og djúpa hugleiðslu mætum við því sem hjarta þitt er raunverulega að kalla á.
  • Skoða hömlurnar: Við rýnum í hvað það er sem fær þig til að fresta því að velja þig, og hvernig þú breytir úr biðstöðu í flæði.
  • Setja stefnuna: Finna hvert fyrsta, raunverulega skrefið þitt er og hvernig þú tekur það strax.

Praktískar upplýsingar

  • Staður: Zoom
  • Tími: 13. ágúst kl. 18:00 – 20:00
  • Verð: Þátttaka er þér að kostnaðarlausu, en skráning er nauðsynleg til að tryggja þér pláss og fá Zoom-hlekkinn sendan í tölvupósti.

Vertu með okkur og taktu ákvörðunina um að skapa þinn tíma.