Heilun ættarlína

From: 21.666 kr. / month for 3 months

Vissir þú að áföll forfeðra og formæðra okkar geta haft áhrif á næstu 7 ættliði sem koma á eftir? Langar þig að kanna hvaða árhrif líf þeirra sem á undan hafa gengið, hafa á þitt líf í dag?

Komdu með í þetta spennandi ferðalag og skoðaðu hvar þú getur frelsað þig frá þeim hugsunum, tilfinningum og hegðunarmunstrum sem þú hefur fengið í arf, jafnvel ómeðvitað.

Heilun ættarlína verður haldið á höfuðborgarsvæðinu 27. og 28. júní.

Námskeiðsgjald eru 65.000 krónur, en innifalið í námskeiðsgjaldi eru leiðsagnarspil og efniskostnaður. Hægt er að velja um að greiða fullt verð við skráningu eða skipta greiðslum yfir þrjá mánuði.

Staðfestingargjald eru 15.000 krónur af fyrstu greiðslu og er það ávallt óendurkræft.

Clear

SKU: N/A Category:

Það er þekkt staðreynd innan erfðavísinda að áföll breyta DNA-inu okkar og geta erfst áfram í allt að 7 ættliði. Við getum því tekið í arf hegðunarmunstur, tilfinningar og hefðir sem sköpuðust í kjölfar áfallsins og lituðu ættarsöguna upp frá því. Í sumum tilvikum erum við meðvituð um þessu áhrif, en í mörgum tilvikum er þetta okkur dulið og við gerum okkur jafnvel ekki grein fyrir þeim.

Á námskeiðinu skoðum við í gegnum fjölbreyttar leiðir, hvaða áhrif líf forfeðra og formæðra okkar haf á okkar eigið líf í dag. Við tengjumst forfeðrum og formæðrum í gegnum hugleiðslur og leiðsagnarspil, leitum svara við þeim spurningum sem vakna, og förum í trommuferðalög og aðrar athafnir sem hjálpa okkur við að skilja, heila og hreinsa ættarlínurnar okkar og um leið okkur sjálf.

Leiðsagnarkona á námskeiðinu er Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir (Hrabbý), en hún er annar stofnenda Starcodes Academy. Hrabbý er kennari að mennt og hefur að auki aflað sér réttinda sem “Certified Ancestral Healing Practitioner”.

Additional information

Greiðsluleiðir

Fullt verð, Skipt í þrjár greiðslur