Description
Á okkar ferðalagi hefur reynst okkur ómetanlegt að hafa ráðgjafa og mentora til að styðja við okkur. Manneskjur sem geta:
- Haldið uppi speglinum og hjálpað okkur að greiða í gegnum flækjurnar sem við búum svo oft til í hausnum á okkur
- Hvatt okkur áfram þegar við upplifum að við séum föst
- Skoðað með okkur verkefnin sem liggja á borðinu og leiðbeint okkur áfram
- Hjálpað okkur að hafa yfirsýn en um leið rýnt smáatriðin með okkur
Í framhaldi af námskeiðinu Leiðarljósið ÉG bjóðum við því upp á áframhaldandi stuðning í gegnum samfélagið Leiðarljósin. Í boði eru tvenns konar pakkar, annars vegar grunnáskrift og hins vegar VIP áskrift. Báðir pakkar hafa 6 mánaða lágmarks skuldbindingu.
Með báðum pökkum fylgir Hjartaakurinn ókeypis með á meðan að á skuldbindingu stendur.
Þau sem kjósa að skrá sig á námskeiðið Þín persónulega umbreyting fá einnig innifalda grunnáskrift af Leiðarljósunum og Hjartaakurinn á meðan á námskeiði stendur.



