Heilun ættarlína

Heilun ættarlína

Um námskeiðið

Það er þekkt staðreynd innan erfðavísinda að áföll breyta DNA-inu okkar og geta erfst áfram í allt að 7 ættliði. Við getum því tekið í arf hegðunarmunstur, tilfinningar og hefðir sem sköpuðust í kjölfar áfallsins og lituðu ættarsöguna upp frá því. Í sumum tilvikum erum við meðvituð um þessu áhrif, en í mörgum tilvikum er þetta okkur dulið og við gerum okkur jafnvel ekki grein fyrir þeim.

Á námskeiðinu skoðum við í gegnum fjölbreyttar leiðir, hvaða áhrif líf forfeðra og formæðra okkar haf á okkar eigið líf í dag. Við tengjumst forfeðrum og formæðrum í gegnum hugleiðslur og leiðsagnarspil, leitum svara við þeim spurningum sem vakna, og förum í trommuferðalög og aðrar athafnir sem hjálpa okkur við að skilja, heila og hreinsa ættarlínurnar okkar og um leið okkur sjálf.

Leiðsagnarkona á námskeiðinu er Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir (Hrabbý), en hún er annar stofnenda Starcodes Academy. Hrabbý er kennari að mennt og hefur að auki aflað sér réttinda sem “Certified Ancestral Healing Practitioner”.

Næstu námskeið

Vissir þú að áföll forfeðra og formæðra okkar geta haft áhrif á næstu 7 ættliði sem koma á eftir?

Langar þig að kanna hvaða áhrif líf þeirra sem á undan hafa gengið, hafa á þitt líf í dag?

Komdu með í þetta spennandi ferðalag og skoðaðu hvar þú getur frelsað þig frá þeim hugsunum, tilfinningum og hegðunarmunstrum sem þú hefur fengið í arf, jafnvel ómeðvitað.

Næstu námskeið

Heilun ættarlína verður haldið á höfuðborgarsvæðinu 27. og 28. júní.

Innifalið í námskeiðsgjaldi eru leiðsagnarspil og efniskostnaður en hægt er að velja um að greiða fullt verð við skráningu eða skipta greiðslum yfir þrjá mánuði.

Staðfestingargjald eru 15.000 krónur af fyrstu greiðslu og er það ávallt óendurkræft.

Umsagnir

Hvað er það dýrmætasta sem þú tókst með þér frá námskeiðinu?

Mér fannst ég ná tengslum við fólk sem ég hef nánast ekkert vitað um og held að það geti hjálpað mér við heilun fólks sem er enn á lífi í dag.

Að fá algjörlega hvaðan hæfileikar mínir og lestir koma. Og að geta heilað þeirra líf.

Að skilja hvaðan sumt kemur og hafa tækifæri til að heila það fyrir forfeður mína, mig og mína afkomendur. Ótrúlega mikilvægt. Standa öruggari í mínum kjarna, óhrædd við að halda áfram og lifa því lífi sem mig langar, öllum stundum. Yndisþakkir fyrir frábært ferðalag.

Hvernig fannst þér námskeiðið?

Mér fannst námskeiðið alveg frábært að öllu leyti.

Meiriháttar skemmtilegt og vel uppsett.

Algjörlega magnað, stigvaxandi og dásamlegt.

Mjög vel upp byggt og trommuferðalögin hreint út sagt mögnuð.

Hvernig var Hrabbý sem leiðsögukona?

Nærvera Hrabbýjar er svo hlý og persónuleg og tengir allt og allar svo vel saman.

Yndisleg eins og alltaf. Örugg, skemmtileg, dásamlegur söngur og átti auðvelt með að fara með mann í ferðalag.

Söngur og tromma hafa sérstök áhrif á mig, það er eitthvað magical við það.