Leiðarljósið ÉG

Leiðarljósið ÉG

Hvað gerir þig að einstökum meðferðaraðila sem rétta fólkið vill vinna með?

Það er mikil þörf fyrir fjölbreyttar heildrænar meðferðir í dag en hvernig á rétta fólkið að finna þig ef það veit ekki af þér?

Hver meðferðaraðili er einstakur því öll höfum við einstaka orku, ólíkan bakgrunn, upplifanir og sýn á lífið. Til þess að standa út í hópi meðferðaraðila með sama skírteinið þarf fólk að vita hver þú ert og hvað þú stendur fyrir.

Þetta námskeið er hannað fyrir þau sem starfa (eða stefna að því að starfa) við heildrænar meðferðir eða með fólki almennt.

Á námskeiðinu færum við þér ýmis verkfæri sem þú getur notað til að láta drauminn þinn um starfsemi byggða á sterkum grunni og gildum verða að veruleika, þar sem þú getur staðið að fullu í styrk þínum sem manneskja, meðferðaraðili og fyrirtækjaeigandi.

Áður en haldið er af stað sem meðferðaraðili er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir því á hvaða stoðum við viljum byggja starfsemina, hver gildi okkar eru og hvernig þau endurspeglast í öllu sem við gerum. Fyrir þau sem hafa starfað sem meðferðaraðilar í einhvern tíma, er þetta frábært tækifæri til þess að byggja sterkari grunn undir starfsemina.

Við skoðum meðal annars hvernig við:

 römmum inn þjónustuna okkar
förum að því að laða til á viðskiptavini sem við viljum fá til okkar
höldum við andlegu hreinlæti fyrir okkur og höldum öruggt rými fyrir viðskiptavini okkar
göngum úr skugga um að starfsemin þróist með okkur
✨sjáum til þess að starfsemin sé í fullu samræmi við það sem við viljum standa fyrir og haldi þar með áfram að veita okkur gleði og innblástur

Er ekki kominn tími á næsta kafla þar sem þú stígur að fullu út úr andlega skápnum og inn í kraftinn þinn? Tími þar sem þú stígur inn í tilganginn þinn og lifir hann?

Hvenær, hvernig og hvar?

  • 4. mars: 18:00 – 20:00
  • 11. mars: 18:00 – 20:00
  • 18. mars: 18:00 – 20:00
  • 25. mars: 18:00 – 20:00
  • 1. apríl: 18:45 – 20:45
  • 8. apríl: 18:00 – 20:00
  • 15. apríl: 18:00 – 20:00
  • 22. apríl: 18:00 – 20:00
  • 29. apríl: 18:45 – 20:45
  • 6. maí: 10:00 – 16:00 staðlota á höfuðborgarsvæðinu

Fyrirkomulag: Kennslan byggist upp á vikulegum Zoom fundum og verkefnum sem unnin eru milli tíma auk staðlotu í lok námskeiðs. Til viðbótar veita leiðsögukonur stuðning á milli funda á Telegram samskiptaforritinu. Verkefnin og upptökur af fundunum (nema staðlotu) verða settar inn á lokað vefsvæði fyrir námskeiðið en þátttakendur fá að auki hugleiðslur og æfingar sem tengjast efninu.

Námskeiðsgjald og greiðslumöguleikar: Námskeiðsgjald eru 249.500 krónur en hægt að dreifa greiðslum á 5 mánuði eða 10 mánuði. Þau sem greiða að fullu við skráningu fá í kaupauka 1 leiðsagnardag með kennurunum á Telegram að námskeiði loknu.

Stéttarfélög gætu niðurgreitt námskeiðsgjaldið, við hvetjum þig til að kanna málið hjá þínu félagi. 

VIP PAKKI: Fyrir þau sem vilja tryggja sér frekari handleiðslu að námskeiði loknu er hægt að bæta við námskeiðið VIP pakka sem inniheldur 1 x 60 mínútna leiðsagnartíma í eigin persónu eða á Zoom OG 2 heila leiðsagnardaga á Telegram að námskeiði loknu. VIP pakkinn kostar 55.500 og leggst ofan á námskeiðsverð. 

Snemmskráning: Skráningarfrestur er til miðnættis 3. mars en þau sem skrá sig fyrir miðnætti 6. febrúar fá að auki 1/2 leiðsagnardag á Telegram (3 klst) að námskeiði loknu.

 

Viltu vita meira?

Þú getur bókað 20 mínútna samtal við Ölmu eða Hrabbý með því að bóka þér tíma hér fyrir neðan og svara örfáum spurningum.