Skýr sýn – Vinnustofa

Skýr sýn – vinnustofa

Byggðu traustan grunn að nýju upphafi

Ertu að leita að tilgangi og dýpri upplifunum í daglegu lífi? Orka ársins 2026 hvetur okkur til þess að slíta af okkur höftin og mæta okkur sjálfum af fullum heiðarleika. Þetta er ekki enn ein áskorunin um að „hugsa bara jákvætt“ eða læra nýja töfralausn – þetta er okkar boð til þín um að byrja að byggja raunverulegan og traustan grunn sem endist.

Andleg iðkun færir okkur nær okkur sjálfum, hjálpar okkur að upplifa öryggi og mæta lífinu af meiri krafti og skýrleika. Andleg iðkun á ekki að vera flótti frá raunveruleikanum, heldur tækifæri til að nýta þann ofurkraft sem í því felst að vera manneskjur og lifa okkar allra besta lífi hvernig sem það lítur út fyrir hvert og eitt okkar.

Þessi vinnustofa er fyrir þau sem eru tilbúin að hætta að „reyna“ og byrja að „gera“. Fyrir þau sem vilja tengjast hjartanu betur og skapa rútínu sem nærir, í stað þess að vera enn eitt atriðið á tékklistanum sem þarf að klára.

Vilt þú fá skýra sýn?

Við skorum á þig að taka þátt í þessari fjögurra daga vinnustofu með okkur á Facebook dagana 19.-22. janúar og byrja nýja hringrás af krafti.

Að morgni dags kemur inn myndband með umfjöllun um efni dagsins ásamt verkefni því tengdu. Við hittumst svo kl. 19:00 þar sem þú getur spurt okkur spurninga um efnið.