Leyndardómar skosku steinanna

Upplifunarferð fyrir hjarta og sál

Skotland

Finnur þú steinana kalla?

Frá því við vorum litlar hafa myndir af standandi steinum og steinahringjum kallað á sálina okkar. Hvað eru þessir steinar að gera þarna? Hvaða hlutverki gegndu þeir? Hefur hlutverk þeirra breyst í gegnum tíðina? Er það sem mannkynssagan telur sig vita um steinana rétt? Eða er sagan kannski allt önnur?

Fyrir tveimur árum drógu steinarnir í Kilmartin Glen og eyjan Arran okkur að sér og við hlýddum kallinu. Líkt og áður leyfðum við hjartanu að ráða og innsæinu að leiða okkur að stöðum til að tengjast og vinna með.

Því sem við upplifðum á þessu magnaða svæði er erfitt að lýsa með orðum. Eina leiðin til að skilja hvað við erum að tala um, er að koma með okkur á staðinn og upplifa það.

Kafa inn í leyndardóma steinanna, skyggnast á bak við það sem er vitað og skrifað, hlusta á þá hvísla að okkur. Upplifa þau ævintýri sem steinarnir vilja deila með okkur.

Tekur hjartað þitt kipp við að lesa þetta?

Komdu þá með okkur til Skotlands dagana 6.-13. júní 2026 og leyfðu okkur að opna fyrir þér sannkallaða ævintýraheima.

Tilgangur ferðarinnar er að tengja við orku svæðana sem við heimsækjum, orku standandi steina og steinahringja, við náttúruverur svæðanna og njóta þeirrar þess sem Skotland hefur upp á að bjóða. Um leið nærum við okkur og njótum, skoðum okkur sjálf og tengingar okkar við þetta einstaka land.

Við munum dvelja á skosku sveitasetri allan tímann, en setrið og garðana í kring höfum við útaf fyrir okkur. Þaðan förum við svo í dagsferðir til Kilmartin Glen og eyjunnar Arran. Með okkur í för verður Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari, sem sér um að útbúa fyrir okkur gómsætan mat alla ferðina.

Hefurðu áhuga á leyndardómum skosku steinahringjanna?

Skotland
Skotland
Skotland
Skotland

Ferðalagið hefst á Glasgow flugvelli, en þaðan liggur leiðin til sveitasetursins Balinakill Counry House, en það er staðsett í Kintyre Peninsula í Argyll, og verður heimili okkar í ferðinni.

Skipulögð dagskrá er alla dagana en meðal þess sem boðið verður upp á  eru tvær heimsóknir til Kilmartin Glen þar sem við skoðum Kilmartin safnið, grafhýsi, standandi steina, steinahringi og steinaristur, auk þess að heimsækja hin mögnuðu Dunadd Fort og Carnasserie kastala.

Á hverjum stað leggjum við áherslu á að tengja við orku staðarins og upplifa hann með hjarta og sál, við skoðum jafnvel fyrri líf okkar og tengjum við forfeður og mæður en tengingar okkar geta verið afar ólíkar milli staða og einstaklinga. Við vinnum mikið í gegnum hugleiðslur og innri skynjun.

Hrabbý og Alma leggja áherslu á að fara hægt yfir, njóta og upplifa. Hvert og eitt fær tækifæri til að skoða sinn ásetning í byrjun ferðar og gefinn er tími til endurlits. Þó áhersla ferðarinnar sé á leyndardóma steinanna munum við einnig tengjast náttúruverum og öðrum ljósverum sem upp á banka. 

Skotland

Fyrir tveimur árum fórum við í ferðina Hjarta Skotlands, sjáðu hvað samferðafólk okkar hafði að segja um ferðina

Hjarta Skotlands ferðin var …

… „Spennandi, ögrandi þroskandi og upplýsandi.“
… „Mögnuð upplifun!“
… „Ferð upplifana, ferð þar sem þú ert fullkomlega örugg og viðurkennd nákvæmlega eins og þú ert, frá þínu sálar hjarta.“
… „Ævintýri, stórkostleg upplifun og samhentur hópur.

… „Ferð sem við tengjum okkur við það sem við vissum innst inni en vorum búin að gleyma og er núna komið upp á yfirborðið.“
… „Áhugaverð ferð um fallegan hluta Skotlands, með frábæru fólki.“
… „Einstök ferð í alla staði og ég mæli heilshugar með henni. Ferð sem verður ofarlega í mínu hjarta sem eftir er og ég vona að það verði framhald á.“

Leiðsögukonurnar voru …

… „Alveg til fyrimyndar og vel skipulagðar.“
… „Þær bara kunna þetta, að skipuleggja og halda utan um hópa. Þær eru flottar saman.“
… „Ég vil bara koma á framfæri þakklæti fyrir einstaka leiðsögn og umhyggju þeirra í ferðinni.“
… „Jákvæðar og alltaf reiðubúnar að aðstoða og hafa gaman.“
… „Tíminn flaug bara alltof hratt og vonandi líður tíminn hratt að næstu ferð.“

Skotland

Hvað gaf ferðin þér?

“Ferðin gaf mér enn betri tengingu við náttúruöflin, álfana og aðrar náttúruverur. Það gerðist eitthvað stórkostlegt, ævintýralegt og töfrum líkast.”

“Orðið þakklæti er kannski það sem er mér efst í huga þegar ég hugsa til baka. Þarna kynntist ég sjálfri mér, fyrri lífum, frábæru og einstöku fólki.”

“Ég upplifði meiri tengingu við náttúruna og opnaði á orkuna sem er allt í kringum okkur. Yndislegar minningar með frábæru fólki í fallegri náttúru.”

Verð 

*Með fyrirvara um gengisbreytingar – GBP (bresk pund)

  • Tveggja manna herbergi með einka baðherbergi: 2.800 GBP  eða um 475.000* ISK
  • Eins manns herbergi með einka baðherbergi: 3.600 GBP eða um 612.000* ISK – ATH takmarkaður fjöldi eins manns herbergja í boði!

Athugið að ofan á verðið geta bæst þjónustugjöld frá banka eða ferðaskrifstofu. 

Hægt er að velja á milli þess að greiða alla ferðina í einu, eða dreifa henni niður í 4 hluta sem hér segir:

  • 1. greiðsla:
    • Tveggja manna: Staðfestingargjald að upphæð 780 GBP (ISK 132.300)* til greiðslu við bókun – þar af eru 300 GBP óafturkræf.
    • Eins manns: Staðfestingargjald að upphæð 1.100 GBP (ISK 187.000)* til greiðslu við bókun – þar af eru 300 GBP óafturkræf.
  • 2. greiðsla (til greiðslu 10. nóvember 2025):
    • Tveggja manna: 673 GBP (ISK 114.468)*
    • Eins manns: 833 GBP (ISK 141.668)*
  • 3. greiðsla (til greiðslu 10. janúar 2026):
    • Tveggja manna: 673 GBP (ISK 114.468)*
    • Eins manns: 833 GBP (ISK 141.668)*
  • 4. greiðsla (til greiðslu 10. apríl 2026):
    • Tveggja manna: 673 GBP (ISK 114.468)*
    • Eins manns: 833 GBP (ISK 141.668)*

Ef ferðin er greidd öll í einu eru 300 GBP óendurkræf. Sjá nánar um greiðsluskilmála neðst á síðunni.

Hvað er innifalið í verðinu?

  • Flug frá til og frá Íslandi
  • Allar ferðir innan Skotlands
  • Aðgangeyrir að allri afþreyingu sem getið er í leiðarlýsingu
  • Allar máltíðir í Balinakill Country House (nesti þegar við á) og hádegisverður í Kilmartin Museum.
  • Hugleiðslur og athafnir
  • Leiðsögn fararstjóra

Hvað er ekki innifalið í verðinu?

  • Ferðir til og frá flugvelli á Íslandi
  • Veitingar sem þátttakendur velja að versla sér á kaffihúsum eða veitingastöðum
  • Minjagripir og annað sambærilegt
  • Þjórfé fyrir bílstjóra og leiðsögufólk (annað en fararstjóra)

Praktísk atriði

Ferðin er seld af TRIPorganiser Scotland Ltd. sem er lítil fjölskyldurekin ferðaskrifstofa staðsett í Edinborg. Alma og Hrabbý verða með hópnum allan tímann og halda utan um daglega dagskrá. Gert er ráð fyrir að allir þátttakendur taki þátt í dagskrá ferðarinnar. Það hentar því ekki að taka með maka/vin sem ætlar sér að gera eitthvað annað. Allir þátttakendur þurfa að vera vel göngufærir.

Athugið að lágmarksfjöldi í ferðina eru 14 og hámarksfjöldi eru 16  þátttakendur. Það borgar sig því að tryggja sér sæti sem allra fyrst!

Skráning

Til að skrá þig í ferðina biðjum við þig að fara í gegnum tvö skref:

1. skref – Fylltu út eyðublaðið hér að neðan, staðfestu að þú sért ekki vélmenni og ýttu á SENDA. Þú þarft að fylla út eyðublað fyrir hvern og einn ferðalang ef þú ert að panta fyrir fleiri en einn.  Til að tryggja plássið þarftu að taka skref númer 2 hér fyrir neðan (þar er hægt að bóka fleiri í einu).

2. skref – Ýttu á hnappinn Kaupa ferð hér! Hnappurinn leiðir þig á skráningar- og greiðslusíðu TripOraganiser Scotland Ltd. þar sem þú slærð inn upplýsingarnar þínar og gengur frá greiðslu.

Eftir skráningu færð þú tölvupóst frá okkur með frekari upplýsingum ásamt hlekk sem leiðir þig inn á skráningar- og greiðslusíðu TripOrganiser Scotland Ltd. Þú getur því valið um hvora leiðina þú notar.

Í þeim tölvupósti er einnig hlekkur á annað eyðublað þar sem þú skráir upplýsingar um almennt heilsufar s.s. óþol/ofnæmi og hvað annað sem gæti skipt máli í ferðinni. Þar setur þú einnig inn óskir um herbergisfélaga hafir þú slíka ósk.

ATH! Þú hefur ekki tryggt þitt pláss í ferðinni fyrr en báðum skrefum er lokið.

    Afbókunarskilmálar:

    • sé afbókað meira en 13 vikum/91 degi fyrir upphaf ferðar: Endurgreitt allt að 300 GBP sem eru óafturkræf.
    • sé afbókað frá 90-65 dögum fyrir upphaf ferðar eru 20% af greiddu gjaldi óafturkræfanleg
    • sé afbókað frá 64-35 dögum fyrir upphaf ferðar eru 70% af greiddu gjaldi óafturkræfanleg.
    • sé afbókað minna en 35 dögum fyrir upphaf ferðar er engin endurgreiðsla. 
    • sé um “no show” að ræða (farþegi mætir ekki) er viðkomandi viðskiptavinur rukkaður um fullt verð ferðar.