Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Engla Reiki 1 & 2 í Reykjavík

nóvember 14, 2025 @ 6:00 e.h. - nóvember 16, 2025 @ 4:30 e.h.
ISK57.500

Dagana 14.-16. nóvember bjóðum við upp á Engla Reiki 1 og 2 vinnustofu í Reykjavík.

Engla Reiki er dásamlega mjúk en kröftug heilunaraðferð sem við getum notað dags daglega fyrir okkur sjálf, fjölskyldu, vini og dýrin okkar, sem og boðið viðskiptavinum.

Þessi vinnustofa kennir hina mögnuðu heilunaraðferð sem Engla Reiki er og er kennt yfir föstudagskvöld 18.00-22.00, laugardag 9.30-17.30 og sunnudag 9.30-16.30. Þátttakendur taka á móti 1. og 2. gráðu Engla Reiki á þessum tíma og fá praktíska reynslu í nokkrum mismunandi meðferðaraðferðum.

Samstillingin (attunement), sem tengir þátttakendur við heilunarenglana sína sem vinna með hverjum einstaklingi þar eftir, inniheldur Reiki tákn sem eru samstillt gegnum tíðni englanna. Þessi tákn voru gefin mannkyninu af St. Germain á tímum Atlantis. Ekki er þörf á að læra táknin.

Námskeiðið kostar 57.500 og innifalið í því er kristall og prentuð handbók á íslensku. Skráning fer fram hér.
Greiða þarf 15.000 króna staðfestingargjald við skráningu og eftirstöðvar 4. nóvember. Athugið að ef skráning fer fram eftir 4. nóvember skal greiða námskeiðisgjaldið að fullu strax. Hægt er að óska eftir dreifingu á greiðslum ef rými er til, settu inn athugasemd í kaupferlinu ef þú óskar eftir dreifingu.
Kennari á námskeiðinu er Alma Hrönn Hrannardóttir

Details

Venue

  • Starcodes skólinn
  • Krókháls 5A, 2. hæð til vinstri
    Reykjavík, 110
  • Phone 6912710
  • View Venue Website

Organizer