
Orkusteinar er lítil verslun sem við rekum frá bækistöðvum okkar í Kópavogi. Orkusteinar eru hluti Starcodes skólans og bjóðum við upp á gott úrval af kristöllum og leiðsagnarspilum ásamt öðrum vörum tengdum andlegri iðkun, svo sem bækur, kertastjaka, skart og fleira. Við byggjum á nær tveggja áratuga reynslu okkar af að vinna með bæði kristalla og leiðsagnarspil. Alma byrjaði að flytja inn kristalla og leiðsagnarspil fyrir um 15 árum með móður sinni í tengslum við kristalla- og spilanámskeið. Við byggjum því á góðum grunni þegar kemur að því að aðstoða þig við að finna vörur sem henta þér eða þeim sem þeim sem þér þykir vænt um.
Á samfélagsmiðlum Orkusteina á Facebook og Instagram er að finna upplýsingar um hluta af okkar vöruúrvali, myndir af kristöllum og virkni þeirra ásamt myndum af hluta þeirra spila sem til eru. Við gerum okkar besta til að bjóða upp á nýjar útgáfur spila sem og breitt úrval af stokkum sem eiga alltaf við en hafa ólíka orku og myndir. Þú getur fundir okkurundir @orkusteinar á bæði Facebook og Instagram!
Við aðstoðum við val á vörum og deilum spilalögnum og upplýsingum um þá kristalla sem við höfum skrifað um á íslensku. Einnig höfum við tekið saman kristalla byggða á ákveðnum þemum, til dæmis til að styðja við betri svefn, auka einbeitingu, dýpka hugleiðslu og fleira.

