Vilt þú?
Upplifa meiri vellíðan og sátt í eigin lífi?
Fá stuðning við að þroska andlegu tengingarnar þínar?
Kynnast öðru andlegu fólki og taka þátt í fjölbreyttri umræðu um andleg mál?
Á Hjartaakrinum erum við fyrst og fremst heiðarleg við okkur sjálf. Við tökum tíma fyrir okkur til að efla okkur sem manneskjur og skapa það líf sem við viljum lifa án afsakana. Það gerist ekki nema með því að taka stjórn á eigin orku og eigin lífi.
Hvað færð þú á Hjartaakrinum?
Þegar þú skráir þig á Hjartaakurinn færðu strax aðgang að öllu því efni efni sem við sett inn á hann frá upphafi. Efnið er afar fjölbreytt og þú getur byrjað að nýta þér það strax.
Hugleiðslur
Við höfum miðlað fjölda leiddra hugleiðsla á íslensku sem við notum til að hjálpa okkur við að vinna í og styrkja okkur sjálf. Í hverjum mánuði tengjum við hugleiðslurnar við verkefni mánaðarins og vinnum markvisst í gegnum það.
Skjöl
Ég er staðhæfingar og Sálarmantran sem bæði hjálpa okkur að hækka tíðnina okkar, auk vinnubókar fyrir árið og fjölda spilalagna.
Námskeið og fyrirlestrar
Áskrifendur fá einnig aðgang að upptökum af eftirfarandi námskeiðum og fyrirlestrum: Andleg vernd, Viltu vita meira?, Á fleygiferð inn í fimmtu víddina, Kristalar og leiðsagnarspil í daglegu lífi, Tunglið og fræðslu um Orkustöðvarnar 12.
Mánaðarlegt efni
Meistari Hjartaakursins er Melchizedek en ásamt honum vinnum við í hverjum mánuði með þeim ljósverum sem eiga við hverju sinni. Þau ásamt fleiri ljósverum leiða okkur áfram við að kafa ofan í þá orku sem við þurfum að vinna með í hverjum mánuði.
Hugleiðslur
sem tengjast þema hvers mánaðar.
Myndband
með hugleiðingum og upplýsingum um þema mánaðarins.
Zoom fundir
Reglulegir Zoom fundir þar sem við ræðum vinnum ýmis verkefni saman, köfum ofan í orkuna, spyrjum spurninga og deilum reynslu. Mikilvægt er að taka þátt en fundirnir verða alltaf aðgengilegir til að hlusta á síðar.
Verkefni
tengt þemanu eftir því sem hver vill og við á.
Facebook og Telegram
Í lokuðum Facebook hópi birtum við myndbönd og annað efni tengt viðfangsefni hvers mánaðar. Telegram er okkar aðal samskiptavettvangur, þar sem við setjum inn hugleiðingar, deilum reynslu og tölum saman um þau verkefni sem við erum að takast á við hverju sinni. Við leiðsögukonur erum virkar á miðlunum og fylgjumst með öllum umræðum.
Hvers vegna sköpuðum við Hjartaakurinn?
Við höfum í gegnum okkar vinnu, með bæði okkur sjálfar og með öðrum, séð hversu mikilvægt er að muna eftir okkar andlegu vegferð dags daglega og lifa okkar lífi út frá hjartanu. Við erum alltaf andlegar verur í efnislíkama, ekki bara þegar við gefum okkur tíma til.
Hluti af því er að stunda hugleiðslur, tengja við orkuna og vinna í gegnum þau verkefni sem upp koma. Það er vinna sem gott er að stunda reglulega allt árið því ef við missum boltann og gleymum okkur geta brekkurnar virst erfiðari en ella.
Við höfum einnig fundið hversu gott er að tengjast öðrum á svipuðu ferðalagi til að hafa stuðning og öruggt rými til að tjá okkur og okkar hugsanir. Þannig komumst við oft hraðar í gegnum áskoranir, hugmyndirnar flæða betur og lausnirnar verða fleiri. Þegar við höfum aðra til að spegla okkur í og leita til þá kemur oft nýtt sjónarhorn mun hraðar en ef við sitjum ein í vangaveltunum.
Við viljum öll vera besta útgáfan af okkur og láta draumana rætast. Orkan sem myndast þegar við tengjumst hvort öðru magnast upp og um leið fáum við stuðninginn og styrkinn til að færast nær okkar besta sjálfi á hverjum degi.
Um leið og við gefum okkur þá gjöf að vinna með okkur þá er það um leið það besta fyrir alla sem í kringum okkur eru.
Vilt þú sá þínum fræjum í Hjartaakurinn?
Meðlimir Hjartaakursins deildu
“Það er ómetanlegt að geta verið samferða einstaklingum á sömu vegferðinni í því samfélagi sem hjartaakurinn er, er þakklát fyrir þá fræðslu og kynningar sem ég hef nýtt mér vel og hefur stutt í leik og starfi. Ég hef aldrei spáð sérstaklega í himintunglinnog orku þeirra og hvað það sem þar er að gerast hefur áhrif á okkur mannverurnar en um leið og ég fór að hlusta á þær stöllur miðla fróðleiknum sínum þá oftar en ekki tengdi ég miklu betur við verkefni míns lífs og þau orkustig sem eru í gangi, algjörlega magnað og núna hlusta ég miklu betur og skil hvenær orkan er lág eða há og af hverju það gæti verið. Dásamlegar samverur og gott að hlusta ♥️♥️ flæðandi kærleikur.”
“Mér finnst mjög gott að hafa stað sem ég get farið á reglulega og viðhaldið andlegri ástundun minni. Að ástunda andlega vinnu á hverjum degi hefur hjálpa mér mjög mikið til þess að ná ró og ég fæ betri yfirsýn yfir verkefni daglegs lífs.”
“Hjartaakurinn hefur fengið mig til að leita lengra inná við til að uppræta hindranir og hlusta á hjarta mitt í leit að því sem kallar á mig og hafa kjark til að framkvæma það.”
“Hjartaakurinn er dásamlegt samfélag þar sem að þátttakendur eru sýnilegir og geta deilt með öðrum sínum pælingum um andleg málefni.”
“Hjartaakurinn og hin andlega vinna mín hefur breytt ýmsu. Ég hef lært að opna hjarta mitt betur, er rólegri og treysti betur á innsæi mitt og hefur það reynst vel. Sjálfsöryggi mitt hefur aukist, ég finn síður fyrir áhrifum af gagnrýni annarra – það er þeirra mál en ekki mitt. Í Hjartaakrinum er fólgið mikið lærdómsferli, ég læri betur að sinna mínum þörfum og verða minna meðvirk (tekur tíma og orku). Hjartaakurinn hjálpar mér að sjá og upplifa að ég er ljósleiðari kærleikans, að ég er elskuð og að allt sé mögulegt.”
“Það hefur opnað og stækkað hjarta mitt enn betur. Aukið næmni mína og innri ró. Ég er svo þakklát fyrir þetta samfélag.”
“Hugleiðslurnar gefa mér mikið og öll fræðsla um andleg málefni, vernd, jarðtengingu og hvað er að gerast í orkunni og fræðsla um spilin og kristalla. Einnig er frábært að sjá spurningar frá hópnum sem þið náið að svara svo vel.
Ég er svo þakklát fyrir alla fræðsluna sem þið Hjartaakurskonur eruð að veita mér og allar dásamlegu hugleiðslurnar. Það er líka svo gott að vera í tengslum við aðra sem eru á andlegu brautinni, gott að eiga samtal, að heyra reynslu annarra og geta tjáð mig um mína reynslu og pælingar og finna allt traustið og kærleikinn milli okkar sem erum að tjá okkur þarna inni í þessum góða hóp.”
Áskrift að hjartaakrinum
Opnað verður næst fyrir umsóknir á Hjartaakurinn í apríl en áhugasamir geti skráð sig á biðlista. VIð höfum samband þegar opnað verður fyrir umsóknir aftur eða ef pláss losnar í millitíðinni.
Sjá skilmála fyrir Hjartaakurinn hér.
Smelltu á hnappana hér á síðunni til að skrá þig í samfélagið. Eftir skráningu og greiðslu fyllir þú út stutta umsókn. Þegar greiðslu og skráningu er lokið færðu staðfestingarpóst með frekari upplýsingum um næstu skref.
Hjartaakurinn er okkur afar mikilvægt verkefni og því viljum við tryggja eins vel og mögulegt er að meðlimir samfélagsins virði þá sýn sem okkur hefur verið gefin á það. Því getur farið svo að umsóknum verði hafnað og verður þá haft samband á næstu dögum til að ganga frá endurgreiðslu og loka fyrir aðgang.
