Þín persónulega
umbreyting
Lykillinn að nýju lífi – haldið í Reykjavík
2026-2027
Hvað vilt þú?
Hvað vilt þú fá út úr lífinu? Vilt þú taka þína stjórnina í þínar hendur? Vilt þú setja þig í fyrsta sæti?
Hefurðu farið sömu hringrásina mörgum sinnum og næstum því náð að breyta, en svo fer allt í sama farið aftur?
Áttu erfitt með að setja þér og öðrum mörk? Upplifir þú þig í hlutverkum í lífinu sem þig langar að losna út úr?
Viltu lifa þínu lífi fyrir þig?
Er kominn tími til að hætta að finna afsakanir fyrir að gera ekki raunverulegar breytingar?
Við skiljum vel hvernig er að vera á þessum stað
Hvernig tilfinning það er að finnast við hafa einhversstaðar tekið vitlausa beygju í lífinu, ekki hlustað nægilega vel á hjartað, ekki horfst í augu við okkur sjálf á heiðarlegan hátt. Finnast við ekki hafa fulla stjórn á eigin lífi.
Hvernig það er að taka þarfir annarra fram fyrir þarfir okkar sjálfra og eiga erfitt með að komast upp úr þeim hjólförum.
Hvernig það er að þrá að elska okkur nóg til að trúa því að við eigum allt það besta skilið og að við megum láta okkur líða betur. Við eigum það öll skilið! Hvert eitt og einasta.
Við þekkjum þá tilfinningu að vita að við þurfum að gera breytingar en fallast hendur þegar kemur að því að finna út hvar í ósköpunum við eigum að byrja!
Það getur enginn gert þessar breytingar nema þú! Þú skapar þitt eigið líf og nú er kominn tími til að lifa því til fulls.
Námskeiðið Þín persónulega umbreyting er 9 mánaða meðganga að nýju lífi. Komdu með okkur í þetta magnaða ferðalag og skapaðu nýtt líf fyrir þig.
Við erum hér fyrir þig og hvort annað og leiðum þig áfram skref fyrir skref
- Þú færð persónulegan stuðning allan tímann.
- Þú ert hluti af mögnuðum hópi fólks sem hittist reglulega, bæði í staðlotum og á netinu.
- Þú hefur tækifæri til að fella múrana, vera algjörlega þú í fullkomnu öryggi.
- Námið er samfellt ferðalag þar sem þú tekur eitt skref í einu, með leiðsögn og stuðningi.
Öllu efni námskeiðsins, hugleiðslum, fræðslu o.s.frv. var miðlað af Hrabbý og Ölmu undir leiðsögn Metatron erkiengils sem hefur yfirumsjón með prógramminu. Námskeiðið er því einstakt í sinni röð og aðeins í boði á Íslandi enn sem komið er. Í gegnum þetta prógramm umbreyttu þær sínu lífi og hafa síðan leitt aðra í gegnum magnað umbreytingarferli. Það sama á við um aðrar leiðsögukonur sem koma að náminu.
Fyrir hverja er námskeiðið?
- Fyrir þau sem eru raunverulega tilbúin að horfast í augu við sig á heiðarlegan og opinskáan hátt.
- Fyrir þau sem eru tilbúin að taka stjórn á sínu lífi og ryðja í burtu þeim hindrunum sem þarf til að svo megi verða.
- Fyrir þau sem eru tilbúin að láta drauma sína rætast og lifa sínu besta lífi.
Æskilegt er að þátttakendur hafi reynslu af hugleiðslu og séu á einhvern hátt komnir af stað í sinni sjálfsvinnu.
Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár er 27. september
Smelltu á hnappinn til að skrá þig.
Um námskeiðið
Námskeiðið stendur yfir í 9 mánuði og á þeim tíma eru níu staðlotur (16 dagar alls), níu Zoom fundir, sex einstaklingstímar og fjöldi heimaverkefna.
Námskeiðið er 140 kennslustundir auk þess sem gert er ráð fyrir um 400 stundum í heimavinnu. Námskeiðinu fylgja hátt í 60 hljóðupptökur af fræðsluefni, æfingum og hugleiðslum, innrammaður persónulegur ljóskóði, kristall, dagbók, lokað samfélag á Telegram til stuðnings og persónulegur stuðningur í gegnum allt námið.
Sjáðu hvað þátttakendur okkar hafa að segja um námskeiðið
„Ég gat losnað við gamlan sársauka endanlega, gaf mér betri sýn á mig, ég er umburðarlyndari, en drama er ekki lengur í kring um mig, fórnarlambið dó.“
„Líðanin innra með mér batnaði og það hefur áhrif á öll samskipti.“
„Er í meira jafnvægi og dregið úr þunglyndi, aðeins minna egó, er meira sama hvað öðrum finnst.“
„Námskeiðið hefur gjörbreytt mér, frá því að vera alltaf í vörn, og búast við því versta frá fólki, í að vera opin sátt og ánægð með mig.“
„Á svo mörgum sviðum farinn að gefa mér meira pláss og rými til að sjá hvað skiptir mig verulega miklu máli.“
„Ég er hætt að æða áfram og gera, ég er meira að forgangsraða í mínu lífi og skoða hvað ég vil og leyfa mér að anda og vera.“
Skólaárið 2026-2027
Hér fyrir neðan eru dagsetningar fyrir staðlotur og zoomfundi.
Staðlotur hefjast yfirleitt um 9:30 og lýkur um 16:30/17:00 en Zoomfundir eru eftirfarandi miðvikudaga frá 17:30-18:45.
Skyldumæting er á allar staðlotur og zoomfundi.
Staðlotur
- 9.-11. október (fös-sun)
- 7. nóvember (lau)
- 4.-5. desember (fös/lau)
- 8.-9. janúar (fös/lau)
- 6. febrúar (lau)
- 5.- 6. mars (fös/lau)
- 4. apríl (ATH sunnudagur)
- 1. maí (lau)
- 28.-30. maí (fös-sun)
Zoomfundir
- 17. september
- 15. október
- 12. nóvember
- 10. desember
- 21. janúar
- 25. febrúar
- 1. apríl
- 29. apríl
- 20. maí
Umsóknarfrestur og verð
Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2026-2027 rennur út þann 27. september 2026 en opnað verður fyrir umsóknir 20. maí. Allar umsóknir eru lagðar fyrir Metatron erkiengil sem velur þátttakendur í hópinn. Umsóknir eru afgreiddar á 4ra vikna fresti allt umsóknartímabilið.
Námskeiðsgjald eru 899.000 krónur sem hægt er að skipta í allt að 12 greiðslur. Af fyrstu greiðslu eru 55.500 krónur óafturkræft staðfestingargjald, en falli námskeiðið af einhverri ástæðu niður, svo sem vegna ónógrar þátttöku fæst staðfestingargjaldið að fullu endurgreitt.
Þátttakendur fá ókeypis aðgang að Hjartaakrinum frá skráningardegi og til loka námsins.
Þau sem kjósa að greiða námskeiðsgjaldið í einni greiðslu fá aukalega 12 mánuða áskrift að Hjartaakrinum að námi loknu.
Snemmskráningartilboð
Þau sem skrá sig fyrir 1. júní næstkomandi fá í staðinn ókeypis aðgang að Hjartaakrinum frá skráningardegi, fram að lokum námsins OG 2 x 3 klukkustunda einkaleiðsögn á Telegram fram að upphafi námsins.
Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldinu?
- Öll kennsla og kennsluefni (kennsluvefur og lokaður Telegram hópur)
- Kaffi, te og nasl í staðlotum
- Persónulegur ljóskóði
- Kristall
- 3 persónulegir leiðsagnartímar
- 3 heilunartímar
- Handleiðsla á námskeiðstíma
- Kostnaður við gistingu og fæði í fyrstu og síðustu staðlotu.
- Áskrift að Hjartaakrinum á meðan á námskeið stendur (andvirði 116.100 kr)
- Grunnáskrift af áskriftarsamfélaginu Leiðarljósin – athugið að þetta á aðeins við um þau sem lokið hafa námskeiðinu Leiðarljósið ÉG (andvirði 265.500 kr)
- Afsláttur í verslun Orkusteina og af öðrum viðburðum/námskeiðum á vegum Starcodes Academy
Athugið að sum stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjöld sinna félagsmanna.
Hafir þú áhuga á að skoða námið frekar hvetjum við þig til að bóka samtal við okkur hér í gegnum síðuna.
Hafir þú áhuga á að heyra af reynslu fyrri þátttakanda í náminu, getur þú lesir umsagnirnar hér á síðunni eða haft samband við okkur og við tengjum ykkur saman.
Þín persónulega umbreyting er aðeins í boði á Íslandi eins og er og er því einstakt nám á heimsvísu.
